Réttindi transgender fólks á Íslandi

Réttindi transgender fólks á Íslandi
Réttindi transgender fólks

Tilgangur þessarar skýrslu er einkum að kanna réttarstöðu TS einstaklinga á Íslandi með það að markmiði koma með tillögur að úrbótum í málaflokknum. Löggjöf í nágrannalöndum okkar og dómaframkvæmd mannréttindadómstóls Evrópu er lögð til grundvallar ásamt upplýsingum frá samtökum TS fólks og öðrum sérfræðingum. Er það von Mannréttindaskrifstofunnar að skýrslan nýtist til að tryggja friðhelgi einkalífs og mannvirðingu alls TS fólks á Íslandi.

Höfundar skýrslunnar eru Sandra Lyngdorf, Kolbrún Birna Árdal, Erna Sif Jónsdóttir, Guðrún Dögg Guðmundsdóttir og Jóna Aðalheiður Pálmadóttir. Ritið er styrkt af rannsóknarsjóði Mannréttindaskrifstofu Íslands og af innanríkis – og velferðarráðuneytinu.

Bókin er ókeypis. Hana má nálgast hjá Mannréttindaskrifstofunni, og einnig sem pdf skjal.


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16