Stuðnings utanríkisráðherra óskað við valfrjálsa bókun um kæruferli vegna brota gegn ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

Reykjavík 30. nóvember 2009

Hr. Össur Skarphéðinsson

utanríkisráðherra

 

Ósk um stuðning við valfrjálsa bókun um kæruferli vegna brota gegn ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

 

Barnaheill á Íslandi og Mannréttindaskrifstofa Íslands hvetja íslensk stjórnvöld til að

styðja gerð valfrjálsar bókunar um kæruferli (e. communication procedure) vegna

Barnasáttmálans. Við hvetjum jafnframt íslensk stjórnvöld til að senda fulltrúa sinn í

Genf á fund starfshóps Mannréttindaráðsins 14.- 18.desember 2009 til að styðja þetta

mál.

 

Í ár eru 20 ár frá því samningurinn um réttindi barnsins var samþykktur af Sameinuðu

þjóðunum. Á þessum tímamótum er vert að fagna því sem hefur áunnist en jafnframt

að efla baráttuna fyrir réttindum barna á Íslandi og um allan heim. Alþjóðasamtök

Barnaheilla, Save the Children hafa frá upphafi barist ötullega fyrir réttindum barna

og stofnandi samtakanna, Eglantyne Jebb, skrifaði Yfirlýsingu um réttindi barnsins (e.

Declaration of the Right of the Child) sem var undanfari Barnasáttmálans.

Stuðningur við gerð og gildistöku valfrjálsrar bókunar (e. optional protocol) um

kæruferli vegna brota gegn ákvæðum Barnasáttmálans fer sívaxandi á

alþjóðavetttvangi

 

Alþjóðasamtök Barnaheilla, Save the Children og 450 önnur frjáls félagasamtök,

mannréttindasamtök og stofnanir hvetja til þess að kæruferlið verði að veruleika.

Í mars 2009 samþykkti Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna ályktun um að

stofnaður yrði starfshópur til að semja drög að ferlinu. Allsherjarþing Sameinuðu

þjóðanna samþykkti ályktunina í júní sl. Fyrsti fundur starfshópsins fer fram í Genf

14.-18. desember 2009 en þar verður tekin ákvörðun um framhaldið.

 

Börn heimsins hafa beðið í 20 ár eftir því að Barnasáttmálinn verði efldur með þessari

mikilvægu viðbót. Barnaheill á Íslandi og Mannréttindaskrifstofa Íslands telja að

valfrjálsa bókunin um kæruferli muni styrkja Barnasáttmálann og stuðla að því að þau

réttindi sem hann kveður á um komist raunverulega í framkvæmd.

 

Virðingarfyllst,

 

Petrína Ásgeirsdóttir

framkvæmdastjóri Barnaheilla á Íslandi

 

Guðrún Dögg Guðmundsdóttir

framkvæmdastjóri Mannréttindskrifstofu Íslands


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16