Alþjóðlegi mannréttindadagurinn í dag

Í dag, 10. desember er Alþjóðlegi mannréttindadagurinn. 63 ár eru liðin frá því að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Á þessum degi árið 2011 er sjónum beint að baráttufólki sem berst fyrir mannréttindum um allan heim og hvetja Sameinuðu þjóðirnar alla til þess að taka þátt í alþjóðamannréttindabaráttunni.

Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Margrét Steinarsdóttir skrifaði grein í tilefni dagsins þar sem hún fer yfir störf og verkefni MRSÍ. Greinina má lesa hér.


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16