TAKK - herferð gegn fordómum

Takk – Auglýsingaherferð Mannréttindaskrifstofu Íslands og Auga.

Markmið átaksins er að vinna gegn fordómum gegn innflytjendum á Íslandi og vekja fólk til umhugsunar um það jákvæða sem fjölmenning hefur í för með sér fyrir íslenskt samfélag.

Herferðin felst í að þakka innflytjendum opinberlega fyrir að auðga mannlíf og menningu landsins og að taka þátt í að byggja hér upp fjölbreytt og öflugt samfélag.

Auglýsingaherferðin stóð í tvær vikur í sjónvarpi, blöðum og tímaritum, strætóskýlum og á netinu.

Herferðin, sem var á vegum AUGA, var unnin í sjálfboðavinnu af auglýsingastofum innan Sambands íslenskra auglýsingastofa, SÍA. Árvakur, Fréttablaðið, Afa JCDecaux, Ríkissjónvarpið, Stöð 2, Skjár einn, Mbl.is og Vísir.is munu birta herferðina og Capacent vinnur rannsóknarvinnu tengda átakinu.



AUGA auglýsingaafl til góðra verka

AUGA er góðgerðarsjóður auglýsinga-iðnaðarins sem er ætlað að gera samtökum sem sinna samfélagsstarfi kleift að ná betri árangri í starfi sínu með því að beita afli auglýsinga í þeirra þágu.

Sjóðurinn hefur gert herferðir til að auka öryggi unglinga á netinu fyrir SAFT/Heimili. Herferðin Látum hvítu ljósin lifa áfram! sem hvatti fólk til að lýsa upp skammdegið með hvítum ljósum var unnin  fyrir trúfélögin í landinu.

Aðilar að AUGA eru: SÍA, ÍMARK, SAU, ÁRVAKUR, BIRTINGUR, RÚV, 365, SKJÁR-INN, AFA JCDECAUX og CAPACENT.


Takk kínverska

TAkk arabíska

Takk - filipíska

Takk-litháíska

Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16