Rafræn vinnustofa fyrir ungt fólk af erlendum uppruna

Mannflóran leitar af ungu fólki af erlendum uppruna á aldrinum 14-25 ára til að taka þátt í rafrænni vinnustofu um andrasisma sem hluti af Evrópuviku gegn rasisma 2024!
 
Mannréttindaskrifstofa Íslands / Icelandic Human Rights Centre heldur utan um Evrópuvikuna gegn rasisma, og niðurstöður vinnustofunnar verða nýttar í samfélagsmiðlaherferð sem vitundarvakning í átakinu.
 
Nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu Mannflórunnar: https://www.mannfloran.is/.../evropuvika-gegn-rasisma-2024
 
Við þurfum eins margar raddir og hægt er! Skráðu þig hér: https://forms.gle/y54T7tKA8CE2QHUH6

Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16