Myndbönd um réttindi fatlaðra barna af erlendum uppruna

Mannréttindaskrifstofa Íslands vekur athygli á myndböndum (sjá meðfylgjandi linka hér að neðan) sem Landssamtökin Þroskahjálp hafa unnið um réttindi fatlaðra barna og talsett á fjögur tungumál. Auk íslensku eru þau á spænsku, arabísku, pólsku og ensku.
 

Myndböndin urðu til í tengslum við verkefni sem samtökin unnu með styrk úr Þróunarssjóði innflytjendamála og fól í sér mjög víðtækt samtal um málefni fatlaðra barna af erlendum uppruna og málþing sem haldið var á vormánuðum 2019. Í ljós kom að foreldrar fatlaðra barna af erlendum uppruna eru oft ekki nógu vel upplýstir um réttindi barna sinna og geta því orðið af mjög mikilvægri þjónustu. Myndböndin eru hugsuð sem liður í því að auka aðgengi að upplýsingum.

Þá eru landsamtökin Þroskahjálp einnig að vinna að þremur nýjum myndböndum um réttindi fullorðins fatlaðs fólks í samvinnu við Félagsmálaráðuneytið. Jafnframt hafa verið unnir aðgengilegir upplýsingatextar um ýmislegt sem varðar réttindi fatlaðs fólks og er nú unnið að því að gera efnið aðgengilegt þeim sem á þurfa að halda. 

Hér að neðan má finna mynbdöndin:


Íslenska 1: https://youtu.be/N-vRkyMWDyg

Íslenska 2: https://youtu.be/ZEBeISwz1og

Íslenska 3: https://youtu.be/dkwt7U_Ukvs


 

Pólska 1: https://youtu.be/yrH8EStyOxA

Pólska 2: https://youtu.be/9TjOeuPNW-M

Pólska 3: https://youtu.be/MFZkV6iBxPw


 

Arabíska 1: https://youtu.be/Ws2knub159s

Arabíska 2: https://youtu.be/f0Fc2kIr69k

Arabíska 3: https://youtu.be/3Oxrm32IPo8


 

Enska 1: https://youtu.be/sI10sJeLiQo

Enska 2: https://youtu.be/5v431cpjQB8

Enska 3: https://youtu.be/8tzItnVcJWk


 

Spænska 1: https://youtu.be/eP6aA2JxThA

Spænska 2: https://youtu.be/1BbVrmBsMK8

Spænska 3: https://youtu.be/bky0P_CUYAw


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16