Flýtilyklar
Aðalfundur MRSÍ og kosning nýrrar stjórnar
Aðalfundur Mannréttindaskrifstofu Íslands var haldinn í gær, 26. maí, þar sem kosið var til nýrrar stjórnar sem mun starfa næstu 2 árin.
Fráfarandi stjórnarformaður, Bjarni Jónsson, hefur setið í 4 ár, tvö kjörtímabil, og átti því ekki kost á áframhaldandi setu. Var hann leystur frá störfum með gjöf, líkt og meðfylgjandi mynd sýnir.
Nýja stjórn skipa:
Kittý Andersson, formaður
Hugrún R. Hjaltadóttir, varaformaður
Ragnheiður Sverrisdóttur, gjaldkeri
Óskum við nýrri stjórn til hamingju með kjörið og velfarnaðar í starfi sínu og þökkum fráfarandi formanni vel unnin störf.