Umsögn MRSÍ um drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum nr. 19/1940, með síðari breytingum (mansal)

Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum nr. 19/1940, með síðari breytingum (mansal).

Mannréttindaskrifstofa Íslands (MRSÍ) hefur ákveðið að taka framangreind drög að frumvarpi til breytinga á 227. gr. a, almennra hegningarlaga til umsagnar.

MRSÍ telur þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpsdrögum þessum mjög af hinu góða. Einkum er jákvætt að tilgreina vændi en ekki aðeins að misnota einhvern kynferðislega og að hagnýting á einstaklingi þurfi ekki að vera í fjárhagslegum tilgangi. Jafnframt er afar jákvætt að þrældómi og ánauð hefur verið bætt inn í ákvæðið og að skuldaánauð skuli nefnd sérstaklega því svo algegnt er að fórnarlömbum mansals séu gerðar upp skuldir sem oft næst aldrei að greiða að fullu.

Hvað varðar greinargerð með frumvarpsdrögunum og athugasemdir með ákvæðinu þá telur MRSÍ þar fram komnar upplýsingar og skýringar sem að gagni koma og auðvelda mega saksókn og sakfellingu í mansalsmálum. Þar má nefna umfjöllun um skilgreininguna á mansali og upptalningu dæma um verknaðaraðferðir, svo sem að neita fíkniefnaneytanda um næsta skammt o.s.frv.

Umsögnina í heild má lesa hér.


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16