Réttindi eru okkar allra – Fræðslumyndbönd fyrir flóttafólk og aðra innflytjendur

Réttindi eru okkar allra – Fræðslumyndbönd fyrir flóttafólk og aðra innflytjendur
Réttindi eru okkar allra

Réttindi eru okkar allra – Fræðslumyndbönd fyrir flóttafólk og aðra innflytjendur

Mannréttindaskrifstofa Íslands og Íslandsdeild Amnesty International hafa gefið út þrjú fræðslumyndbönd um mannréttindi á sex tungumálum (íslensku, ensku, pólsku, spænsku, persnesku og arabísku). Myndböndin þrjú fjalla um jafnrétti, réttindi á vinnumarkaði og réttindi barna. Markmiðið með myndböndunum er að veita flóttafólki og öðrum innflytjendum gagnlegar grunnupplýsingar um réttindi í þessum þremur málaflokkum í tengslum við íslenskt samfélag.

Myndböndin eru hluti verkefnis Mannréttindaskrifstofu Íslands um gerð fræðsluefnis fyrir flóttamenn og innflytjendur út frá sjónarhóli mannréttinda og verkefnis Íslandsdeildar Amnesty International Gagnkvæm aðlögun flóttafólks.

Fræðslumyndböndin voru unnin í samvinnu við framleiðslufyrirtækið KIWI, Alþýðusamband Ísland, sérfræðinga á sviði mannréttinda og síðast en ekki síst fólk sem hingað hefur komið til lands á flótta og deilir sinni reynslu. Á næstu misserum stefna Mannréttindaskrifstofa Íslands og Íslandsdeild Amnesty International að framleiðslu fleiri fræðslumyndbanda er snerta á mikilvægum.

Myndböndin, ásamt upplýsingum má nálgast á heimasíðu Mannréttindaskrifstofu Íslands og á heimasíðu Íslandsdeildar Amnesty International.  

Það er von Mannréttindaskrifstofu Íslands og Íslandsdeildar Amnesty International að fræðslumyndböndin nái sem mestri dreifingu til að fræða sem flesta einstaklinga sem hafa flutt til Íslands. Það er mikilvægt að fólk þekki íslenskt samfélaga og réttindi sín sér og öðrum til gagns.  

 


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16