Mannréttindaþing

Mannréttindaþing
Mannréttindaþing
Mannréttindaskrifstofa Íslands stendur fyrir Mannréttindaþingi laugardaginn 4 september kl. 13:00 - 17:00 í Öskju.
 
Dagskráin er sem hér segir:
 
13:00 Helga Baldvins Bjargardóttir - Mannréttindamenning: Hvað einkennir menningu þar sem mannréttindi eru virt?
13:25 María Árnadóttir - Réttarstaða brotaþola. Úrbætur á íslenska réttarvörslukerfinu fyrir brotaþolendur.
13:50 Tryggvi Rúnar Brynjarsson - Lausir endar Guðmundar- og Geirfinnsmálsins. Farið verður yfir stöðuna sem nú er uppi í málinu og áhersla lögð á þrjú viðföng sem enn eru átök um milli íslenskra stjórnvalda og hinna ranglega dæmdu.
14:15 Margrét Steinarsdóttir - Áskoranir aðildarfélaga MRSÍ í heimsfaraldri: samantekt frá hádegismálþingum sem haldin voru fyrr á árinu.
 
Málþinginu lýkur síðan með pallborði skipuðu fulltrúum jaðarsettra hópa.
 
Að málþingi loknu verður móttaka þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.
 
Sjá slóð á viðburð hér.

Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16