Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins birtir skýrslu um stöðu mannréttindamála á Íslandi.
Mannréttindafulltrúinn kemur alls með 23 ábendingar og athugasemdir í ellefu málaflokkum. Ábendingarnar varða skipan dóms-, fangelsis- og gæsluvarðhaldsmála, mannréttindastofnanir, meðferð hælisumsókna, útlendingalöggjöf, aðbúnað innflytjenda, jafnrétti kynjanna og kynbundið ofbeldi, almennt bann við mismunun, mansal og vernd persónuupplýsinga og gagnaöryggi.
Mannréttindaskrifstofan fagnar skýrslunni en í henni er meðal annars að finna tilmæli um stuðning yfirvalda við skrifstofuna og athugasemdir um hvað betur megi fara endurspegla athugasemdir sem skrifstofunnar t.d. varðandi málefni útlendinga, reglur um gæsluvarðhald og kynbundið ofbeldi.
Heimasíða Mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project