"Ísland er samfélag með áhrifamikla meðvitund um mannréttindi"
"Ísland er samfélag með áhrifamikla meðvitund um mannréttindi" sagði Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, Alvaro Gil-Robles er hann heimsótti Ísland nú fyrir stuttu.
Mannréttindaskrifstofan skipulagði fund með fulltrúanum og fjölda félagsamtaka þar sem spunnust líflegar umræður um stöðu mannréttinda á Íslandi. Fulltrúinn fundaði einnig með stjórnvöldum og heimsótti m.a. fangelsi og Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Í lok september má síðan búast við fyrstu drögum skýrslu fulltrúans um mannréttindamál á Íslandi sem síðan verður vonandi gerð opinber um mánuði seinna.
Aðspurður um stöðu mannrétttinda hér á landi minntist fulltrúinn sérstaklega á mikilvægi þeirra sterku félagasamtaka sem hér starfa og umræðu í fjölmiðlum og samfélaginu almennt.
Hann sagðist sérstaklega áhyggjufullur vegna beitingar einangrunarvistar áður en réttarhöld hefjast og telur ástæðu til að skoða 24 ára regluna í sambandi við dvalarleyfi maka betur. Hann sagði jafnréttislöggjöfina fallega en bitlausa en hrósaði aðbúnaði hælisleitenda þó bæta mætti málsmeðferðina. Einnig ræddi fulltrúinn fyrirkomulag sjálfstæðs efitirlits með mannréttindum og í því samhengi fjármögnun Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Fulltrúinn hefur m.a. lögbundið hlutverk að tala fyrir tilvist opinberra mannréttindastofnana í aðildarríkjum. Hann sagði Mannréttindaskrifstofuna hafa unnið mjög gott starf en að raun væri nú engin opinber mannréttindastofnun, fjármögnuð af ríkinu, til. Fulltrúinn sagði æskilegt að sett væri á stofn slík opinber stofnun en annar kostur væri að styrkja Mannréttindaskrifstofuna.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project