Málstofa um viðurkenningu Íslands á Palestínu

Mannréttindastofnun og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands stendur fyrir málstofu á morgun, miðvikudaginn 25.febrúar kl.12:15-13:30 í Lögbergi, stofu 101. Málstofan fjallar um viðurkenningu Íslands á Palestínu og verður rætt um hvenær þjóð geti stofnað sitt eigið ríki.

Frummælendur eru Pétur Dam Leifsson dósent við lagadeild Hí og Guðmundur Hálfdanarson, prófessor við sagnfræði og heimspekideild HÍ. Fundarstjóri er Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild HÍ.

Nýverið viðurkenndi Ísland Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki en með því var Palestína viðurkennd í fyrsta sinn af ríki í vestur- og norðurhluta Evrópu. Á málstofunni verður rætt um skilyrði alþjóðalaga til að ríki teljist stofnað, aðferðir til að viðurkenna ríki og lagalegar og stjórnmálalegar afleiðingar viðurkenningar. Þá verður fjallað um álitamál tengd rétti þjóða til að stofna ríki, hvað felst í þjóðarhugtakinu og staða Palestínu skoðuð í ljósi helstu kenninga um efnið.

Senda grein


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica