Hinsegin dagar í Reykjavík

Sjálfboðaliðar óskast

Nú nálgast hátíð Hinsegin daga og mikil þörf er á sjálfboðaliðum við ýmis mikilvæg störf á hátíðinni. Dreifing á dagskrárritinu er hafin og allt það fólk sem er að fara út á land næstu daga er beðið um að hafa sem fyrst samband við Þorvald Kristinsson, sími 562 9695 ( thorvaldur.kristins@simnet.is ) ef það vildi taka með sér eintök af blaðinu til að dreifa í ýmsum landshlutum. Einkum er þörf á blaðberum á Suðurlandi, Austfjörðum, Vesturlandi og Vestfjörðum. Einnig þarf að sjá til þess að blaðið komist reglulega á áningarstaði og kauptún við þjóðveginn til Akureyrar.
 
Tveir fundir verða haldnir í samstarfsnefnd fyrir hátíðina á Laugavegi 3, og þangað eru allir sjálfboðaliðar í leit að verkefnum meira en velkomnir. Verkefnin bíða og fundirnir eru fimmtudaginn 29. júlí kl. 20 og þriðjudaginn 3. ágúst kl. 20. Einnig er hægt að hafa beint samband við Þorvald Kristinsson og bjóða aðstoð sína.
 
Á hæðinni framan við félagsmiðstöð Samtakanna ´78 er að finna ögn af upplagi dagskrárritsins og ef einhverjum þykir fólki okkar hafa sést yfir stað hér og þar, er það vel þegið að þið komið við og takið pakka til dreifingar. Vel heppnuð dreifing er sameiginlegt átak okkar allra.

Sjá dagskrá Hinsegin daga 2010 hér.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica