Regnbogahátíð - Guðþjónusta í Fríkirkjunni í Reykjavík
TILEFNI: Gildistaka nýrra hjúskaparlaga.
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 27. JÚNÍ 2010 KL. 20.00
Prestur: Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur í Fríkirkjunni
Fram koma:
Páll Óskar, Hörður Torfa, Sigga Beinteins, Bergþór Pálsson, Lay Low, Maríus Hermann Sverrisson, Hreiðar Ingi Þorsteinsson, Andrea Gylfadóttir, Agnar Már Magnússon píanóleikari og Fríkirkjukórinn undir stjórn Önnu Sigríðar Helgadóttur.
------------
Nýtt stjórnarfrumvarp um breytingu á hjúskaparlögum var samþykkt nýlega á Alþingi. Hér eftir gilda einungis ein hjúskaparlög í landinu fyrir alla, óháð kynhneigð fólks. Þetta er mikilvægt skref og tryggir að samkynhneigð pör sitja loks við sama borð og gagnkynhneigðir og geti gengið í hjónaband.
Lögin munu taka gildi sunnudaginn 27. Júní nk. Af því tilefni vilja Samtökin 78 halda Regnbogahátíð með guðsþjónustu í Fríkirkjunni í Reykjavík, næsta sunnudagskvöld kl. 20.00. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur í Fríkirkjunni, mun leiða þessa samverustund ásamt fjölda tónlistarfólks, sem talið er hér upp fyrir ofan.
Dagsetningin er engin tilviljun, en 27. Júní er opinber Gay Pride hátíðsdagur víða um heim – en þann dag árið 1969 hófust Stonewall uppþotin í New York, sem talin eru marka upphaf réttindabaráttu samkynhneigðra.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir sem vilja samgleðast samkynhneigðum, fjölskyldum og velunnurum þeirra á þessum mikilvæga degi.
Samtökin 78 bjóða svo kirkjugestum upp á léttar veitingar í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg.
-
Nánari upplýsingar:
SVANFRÍÐUR LÁRUSDÓTTIR (SVANA) formaður Samtakanna 78 – s. 865 – 3886 Mansana@simnet.is
Séra HJÖRTUR MAGNI Fríkirkjuprestur s. 899 – 4131 Hjorturm@frikirkjan.is
PÁLL ÓSKAR Tónlistarmaður 898 – 9116 Palloskarhjalmtysson@gmail.com
Samtökin '78 Skrifstofa@samtokin78.is
Allar nánari upplýsingar er að finna á vefnum okkar, www.samtökin78.is.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project