Hátíð á Ingólfstorgi í tilefni af alþjóðadegi flóttamanna 20. júní

"Heimili" er yfirskrift alþjóðadags flóttamanna 2010.

Í tilefni af alþjóðadegi flóttamanna þann 20. júní 2010, efna Rauði kross Íslands og Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samstarfi við Reykjavíkurborg og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, til viðburðar á Ingólfstorgi í hjarta Reykjavíkur. Hátíðin mun standa yfir frá kl. 13:00 til 15:00 og verður ýmislegt í boði, svo sem tónlist, söngur og dans frá ýmsum löndum, matur frá þeim löndum sem flestir flóttamenn á Íslandi koma frá, og einnig verður sitthvað fyrir börnin að skemmta sér við. Boðið verður upp á ókeypis kaffi í boði Kaffi París. Á staðnum verður einnig hægt að afla sér upplýsinga um málefni flóttafólks. Verður gestum og gangandi gert kleift að setja sig í spor flóttafólks með því að spreyta sig á vefleiknum Flótta.

Á alþjóðadegi flóttamanna er vakin athygli á stöðu flóttafólks og allra þeirra sem neyðast til að leggja á flótta. Heimili er yfirskrift alþjóðadags flóttamanna 2010. Áherslan er á raunir þeirra ríflega 40 milljóna karla, kvenna og barna sem neyðst hafa til að yfirgefa heimili sín vegna átaka, ofbeldis eða annarra aðstæðna. Flestir eru á flótta innan eigin landamæra en um tólf milljónir eru skilgreindar sem flóttamenn í skilningi flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Mikill meirihluti flóttafólks leitar ásjár í nágrannaríkjum, sem oft eru fátæk, og bíður tækifæris til að snúa til baka með eða án aðstoðar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Ef flóttafólk getur ekki snúið til baka til síns heima og er ekki öruggt í því landi sem það flúði til, leitar Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna til alþjóðasamfélagsins um að veita þeim sem mest þurfa á vernd að halda öruggt skjól svo það geti hafið venjulegt líf á nýjan leik.

UNHCR_WRD_2010_poster

Þannig hafa íslensk stjórnvöld boðið 512 flóttamönnum vernd hér á landi í samvinnu við Flóttamannastofnun, Rauða kross Íslands og sveitarfélög í landinu frá árinu 1956. Fyrsti hópur flóttamanna kom frá Ungverjalandi en síðan hefur flóttafólk frá Júgóslavíu, Víetnam, Póllandi, Kósóvó, Kólumbíu og Írak fengið skjól hér á landi. Á tímabilinu 1990-2009 hafa um 715 leitað hælis á Íslandi eftir að hafa flúið heimalönd sín, þar af 35 á síðasta ári. Hverju sinni bíður hópur hælisleitenda á Íslandi þess að ákvörðun sé tekin í máli þeirra en málsmeðferð getur tekið langan tíma og sá tími er oft mjög erfiður fyrir hælisleitendur. Á þessu ári hafa íslensk stjórnvöld veitt tíu hælisleitendum vernd á Íslandi.

Á alþjóðadegi flóttamanna nú í ár eru skipulagðir viðburðir um allan heim með það að markmiði að varpa ljósi á raunir  flóttamanna sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjoðanna er málsvari fyrir.

Hér á Íslandi viljum viðvekja almenning til umhugsunar um vanda flóttafólks en einnig mannauð. Fólki hættir til að líta á flóttafólk einungis sem fórnarlömb sem þarfnast hjálpar en það vill gleymast að það tekur líka/einnig virkan þátt í byggja hér betra samfélag og hefur auðgað íslenska menningu og mannlíf.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica