19. júní 2010 - hátíð í tilefni Kvenréttindafrídagsins

Kvenréttindadagurinn 19. júní verður haldinn hátíðlegur að vanda hjá KRFÍ. Að þessu sinni verður dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur haldin kl. 16.00 laugardaginn 19. júní í samvinnu við Skotturnar - félag um 24. október.

Dagskrá:

· Margrét Sverrisdóttir formaður KRFÍ býður velkomin

· Guðrún Jónsdóttir frá Stígamótum kynnir Skotturnar og kvennafrídaginn 2010

· Tímaritin 19. júní og Húsfreyjan verða kynnt

· Úthlutun úr Menningar- og minningarsjóði kvenna: Kristín Þóra Harðardóttir, formaður MMK

· Úrslit úr hönnunarkeppni um barmmerki Skottanna kynnt: Margrét Rögnvaldsdóttir frá Soroptimistahreyfingunni

· Móttaka

Allir velkomnir.

 Kvenrettindafelag_Islands

 

 

 

 

Leturstærð: