Morgunverðarfundur um fátækt - Stýrihópur Evrópuársins 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun

Morgunverðarfundur um fátækt verður haldinn föstudaginn 4. júní næstkomandi í Gullteigi B á Grand hótel kl.8:15 - 10:00.

Stýrihópur Evrópuársins 2010 gegn fátækt og félagslegri einangrun boðar til morgunverðarfundarins þar sem fjallað verður um fátækt á Íslandi í dag. Fundurinn er sá fyrsti í fundaröð þar sem fjallað verður um fátækt, félagslega einangrun og leiðir til úrbóta.

Á fundinum munu sérfræðingar á sviði fátæktar og félagslegrar einangrunar gera grein fyrir sinni sýn á vandamálið og hvað þurfi að gera til þess að takast á við fátækt á Íslandi.

Fyrirlesarar verða:

  • Guðný Björk Eydal frá Háskóla Íslands.
  • Vilborg Oddsdóttir frá Hjálparstofnun kirkjunnar.
  • Sólveig Reynisdóttir frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.

Að loknum erindum verða umræður og fyrirspurnir til fyrirlesara.

Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8.15 en fundurinn hefst kl. 8.30 og stendur til kl. 10.00.

Fundurinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica