Gleðidagar Rauða kross Íslands ? hvað ungur nemur, gamall temur

Rauði Kross Íslands í samvinnu við Öldrunarráð Íslands heldur námskeiðið „Gleðidagar – hvað ungur nemur, gamall temur“ fyrir 7-12 ára börn.

Gleðidaganámskeiðin voru fyrst reynd síðasta sumar.

Leiðbeinendur á námskeiðinu verða að mestu eldri borgarar og er hverjum frjálst að miðla því sem hann vill til ungu kynslóðarinnar. Dagskráin er ákaflega fjölbreytt. Boðið verður m.a. upp á hnútabindingar, sögur frá gamla tímanum, ljósmyndun, umhverfis- og náttúrufræðslu, bingó, útileiki, fuglaskoðun, og heimsóknir á hin ýmsu söfn.

Námskeiðin verða haldin á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Hvert námskeið stendur í 3-5 daga. Kennt verður frá klukkan 9-16, með undantekningu á Álftanesi þar sem námskeiðið stendur frá 9-14. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. 

Markmið verkefnisins er að tengja saman yngri og eldri kynslóðir og að miðla gömlum gildum og þekkingu frá hinum eldri til hinna yngri. 

Námskeiðin verða haldin á eftirtöldum stöðum:

14.-18.júní: Kópavogsdeild Rauða krossins, Hamraborg  11, 200 Kópavogi - fullbókað fyrir 7-9 ára börn.
23.-25.júní: Klausturdeild Rauða krossins, 880 Kirkjubæjarklaustri
28.júní - 2.júlí: Álftanesdeild Rauða krossins,  Haukshúsi, 225 Álftanesi
12.-16.júlí: Kjósarsýsludeild Rauða krossins, Þverholti 7, 270 Mosfellsbæ

Hægt er að skrá sig hér að neðan. Skráning stendur til 4. júní.

Skráning

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Lovísu Arnardóttir, verkefnastjóra í s. 869-1994 eða á netfangið lovisa@redcross.is eða hjá Helgu G. Halldórsdóttir sviðsstjóra í s. 570-4030.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica