Öryrkjabandalag Íslands: Dagskrá Rauðakrosshússins 31. maí - 4. júní 2010

Borgartúni 25, 105 Reykjavík.

31.05.2010 - 04.05.2010, kl.12:00 - 17:00

Vikan hefst á skemmtilegum og hnitmiðuðum fyrirlestir um markmið sem kallast Skip án skipstjóra. Þá verður Viðar EFT sérfræðingur með EFT kennslu sem hefur reynst mörgum vel.

Vinnum saman (Býflugurnar) verða á sínum stað á þriðjudaginn, en framhaldshópar sem sprottið hafa af þriðjudagsfundunum eru nú að störfum víðs vegar um bæinn.

Toshiki Toma ætlar að elda fyrir gesti á miðvikudaginn og leyfa fólki að smakka japanskan hversdagsmat og sama dag verður áframhald á umfjöllun um markaðssetningu á internetinu.

Aurelio Ferro kemur aftur á fimmtudaginn í hádeginu og í þetta sinn mun hann kenna gestum að gera alvöru ítalskar kjötbollur. Maturinn hans hefur slegið í gegn í Rauðakrosshúsinu, enda um einstakan matgæðing að ræða.

Ráðgjafar Lausnarinnar koma á föstudaginn og fjalla um meðvirkni og afleiðingar hennar.

Sumaropnun Rauðakrosshússins byrjar þann 7.júní og þá verður opið virka daga milli klukkan 13 og 16.

Qi Gong verður þó áfram á sínum stað á þriðjudögum í hádeginu.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins taka á móti gestum og veita þeim stuðning og ráðgjöf.

Prestar og djáknar hafa viðveru í Rauðakrosshúsinu milli klukkan 14 og 16.

Dagskrá vikuna 31. maí - 4. júní (opnast á heimasíðu Rauðakrosshússins)



 

 

 

Leturstærð: