Seamless care - safe care. EFMI ráðstefna í Reykjavík á vegum Öryrkjabandalags Íslands

Alþjóðleg ráðstefna í upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu

02.06.2010 - 04.06.2010, kl.9:00 - 18:00

Fyrsta alþjóðlega ráðstefna í upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Hér gefst tækifæri til að kynnast því sem efst er á baugi í málefnum rafrænnar sjúkraskrár og samvirkni heilbrigðisgagna í Evrópu án þess að þurfa að ferðast til útlanda. Margir af helstu fræðimönnum Evrópu munu halda fyrirlestra og má þar nefna Peter L. Elkin og William Ed Hammond.

Seamless care - safe care, The challenges of interoperability and patient safety in health care

Efni ráðstefnunnar er aukin rafræn samskipti í heilbrigðiskerfinu bæði innan lands og milli landa. Lögð er áhersla á að kynna hinar mörgu hliðar sem hafa áhrif, hvort hægt er að samtengja heilbrigðisgögn og hvaða þýðingu það getur haft fyrir öryggi sjúklinga. Rætt verður um samvirkni og sendingar heilbrigðisgagna milli staða, samræmingu í notkun rafrænna sjúkraskrárkerfa, rekjanleika upplýsinga, notkun staðla, öryggi sjúklinga og atriði sem snerta aukinn aðgang einstaklinga að sjúkraskrám.

Ráðstefnan er einstakt tækifæri til þess að kynnast því hvað efst er á baugi í þessum málaflokki bæði hér heima og erlendis.

Í tengslum við ráðstefnuna verður sameiginlegur vinnufundur HL7 og GS1 um rekjanleika heilbrigðisupplýsinga og einnig verður kynning á Evrópuverkefnum um samvirkni upplýsinga.

Ráðstefnan er ætluð fólki úr heilbrigðiskerfinu og stjórnsýslunni, háskóla- og vísindasamfélaginu, hugbúnaðargeiranum og annar staðar úr atvinnulífinu.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni: www.sky.is/stc2010

Að ráðstefnunni standa EFMI ( Evrópusamtök um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu) og Ský (Skýrslutæknifélag Íslands) undir forystu Fókus (faghóps innan Ský um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu).



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica