Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur staðfest skipun Navanethem (Navi) Pillay, frá Suður- Afríku, eftirmann Louise Arbour sem Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna.

Á sérstökum fundi í New York, 28. júlí 2008 var tilnefningin samþykkt einróma. Fjögurra ára tímabilið hefst 1. September 2008.

Ms. Pillay tilheyrði ekki hvíta meirihlutanum á tímum aðskilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku. Hún var grasrótarlögfræðingur sem varði marga andstæðinga aðskilnaðarstefnunnar og verkalýðsleiðtoga. Ms. Pillay hefur því persónulega reynslu af mörgum þeim atriðum sem starf mannréttindafulltrúans glímir við. Hún hefur einnig verið mjög virk í kvenréttindabaráttunni og ver meðal stofnenda alþjóðlegu frjálsu félagasamtakanna Equality Now, sem berjast fyrir réttindum kvenna. Einnig hefur hún unnið með ýmsum samtökum sem láta sig varða börn, fanga, fórnarlömb pyndinga og heimilisofbeldis og ýmis efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi.

Ms. Pillay hefur setið sem dómari í tveimur af mikilvægustu alþjóðlegu refsidómstólum nútímans. Hún var átta ár í Alþjóðlega refsidómstólnum fyrir Rúanda, þar af var hún forseti dómsins í fjögur ár. Undanfarin fimm ár hefur hún verið í Alþjóðlega refsidómstólnum í Haag. Báðir dómstólarnir glíma við allra skelfilegustu mannréttindabrotin- stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð og eru í fremstu röð alþjóðlegrar þróunar á þessum sviðum.

Pillay verður fimmti mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna frá því að stofnunin var sett á fót fyrir fimmtán árum. Hún verður yfirmanneskja rúmlega þúsund starfsfólks sem starfar í fimmtíu löndum með fjárlög upp á 150 milljón ameríska dollara á ári.

Æviágrip

Fædd: 1941

Fæðingarstaður og Ríkisfang: Suður-Afríka

Menntun: University of Natal(BA & LLB); Harvard University (Masters- og Doktorspróf í mannréttindum og alþjóðalögum )

Starfsævi

2003-2008 – Dómari á áfrýjunarstigi, Alþjóðlegi refsidómstóllinn í Haag

1999-2003 -- Forseti, Alþjóðlegi residómstóllinn fyrir Rúanda.

1995-1999 – Dómari, Alþjóðlegi refsidómstóllinn fyrir Rúanda

1995 -- Dómari, Hæstiréttur Suður-Afríku

1995 -- Varaforseti, Háskólinn í Durban Westville

1985 – Meðstofnandi alþjóðlegu kvenréttindasamtakanna Equality Now

1980 -- Fyrirlesari, Háskólinn í KwaZulu-Natal

1967-1995 – Lögfræðingur og lögbókandi, High Court í Suður-Afríku

1967 – Fyrsta konan til að opna lögfræðistofu í Natal fylki í Suður- Afríku.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica