Mannréttindaskrifstofan stendur að alþjóðlegri ráðstefnu um mannréttindi fólks með fötlun

Hinn 27. og 28. september nk. munu Háskólinn í Reykjavík og Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp standa að alþjóðlegri ráðstefnu um mannréttindi fólks með fötlun sem ber yfirskriftina The Human Rights of Persons with Disabilities – from Social Policy to Equal Rights.

Heimsþekktir fræðimenn hafa þegar staðfest þátttöku sína, m.a. frá Harward háskóla og Oxford háskóla. Ráðstefnan er alþjóðleg og sú fyrsta sem haldin er um efnið síðan alþjóðasamningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra var samþykktur nú í vor. 

Þótt réttindi fatlaðra séu víða tryggð formlega er reyndin sú að fólki með fötlun er oft ýtt út á jaðar samfélagsins og því mismunað á flestum sviðum mannlífsins. Fólk með fötlun hefur takamarkaðan aðgang að atvinnulífinu, menntakerfinu og heilbrigðisþjónustu og á erfitt um vik að sækja rétt sinn. Markmið ráðstefnunnar er að fjalla um leiðir til að efla mannréttindi og persónufrelsi fólks með fötlun og stuðla að virðingu fyrir manngildi þeirra. 

Ráðstefnan stendur í tvo daga þar sem tíu fræðimenn munu flytja erindi en í kjölfarið kemur út rit um efni hennar. Markhópur ráðstefnunnar eru innlendir og erlendir fræðimenn, nemar, fulltrúar fatlaðra, starfsmenn hins opinbera og aðrir sem láta sig mannréttindi fatlaðra varða.

Nánari upplýsingar er að finna á www.disabilityrights.is



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica