Hinn 24. september var viðauki við alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi opnaður til undirritunar. Viðaukinn öðlast gildi þegar tíu aðildarríki hafa fullgilt hann. Mannréttindaskrifstofa Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að ganga fram með góðu fordæmi og undirrita og fullgilda viðaukann hið fyrsta.
Lesa meiraSamtök helstu mannréttindastofnana í Evrópu (Association of Human Rights Institutes) samþykktu í byrjun mánáðarins ályktun þar sem þau lýsa þungum áhyggjum sínum af fjárhagsstöðu Mannréttindaskrifstofunnar. Samtökin vekja athygli á að Mannréttindaskrifstofan á aðild að samstarfi AHRI - félaga og breytingar á fjárframlögum hafa grafið undan rekstargrundvelli skrifstofunnar og þar með samstarfi. Við það kvikni efasemdir um vilja íslenskra yfirvalda til að leyfa óháðmat á frammistöðu þess á mannréttindasviðinu. Það að þurf að sækja um til ráuneyta vegi klárlega að stjálfstæði skrifstofunnar, serstaklega þegar kemur að því að gera umsagnir um lagafrumvörp og skuggaskýrslur til alþjóðstofnana.
Lesa meira