« 18 mar. 2009 | 19 mar. 2009 | 20 mar. 2009 »
Í tengslum við 21.mars er haldin Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti og hún miðar að því að uppræta þröngsýni, fordóma og þjóðernishyggju í Evrópu. Markmiðið er að byggja Evrópusamfélag víðsýni og samkenndar þar sem allir eru jafnir, óháð útliti og uppruna. Í ár 14-22. mars munu hundruð samtaka og stofnana í Evrópu standa að viðburðum þar sem unnið er gegn kynþáttamisrétti.
Fjöldi samtaka og stofnana standa að viðburðunum s.s. Mannréttindaskrifstofa Íslands, Þjóðkirkjan, Rauði krossinn, Fjölmenningarsetur, Rætur, SGI búddistafélag, KFUM & KFUK og Hjálpræðisherinn.
Höfuðborgarsvæðið, Smáralind:
Þann 19. mars verður haldinn viðburður í Smáralindinni (1. h.) til að vinna gegn fordómum,ungt fólk mun bjóða gestum og gangandi upp á fjölmenningarsspjall, sælgæti og barmmerki. Ýmis skemmtiatriði verða í boði eins og söngatriði úr söngleik Menntaskólans í Kópavogi "Skítt með það" og söngleiknum Hero, break kennsla, fjölmenningar-“twister” og fleiri leikir.
Akureyri, Glerártorg:
19. mars: kl. 16:30 mun ungt fólk koma saman og kynna fræðsluefni gegn mismunun fyrir vegfarendum á Glerártorgi auk þess sem ýmis skemmtiatriði verða í boði.
Ísafjörður:
19. mars: Unglingar munu safnast saman í verslunarmiðstöðinni Neista kl. 16:30 -18:00 og spjalla við vegfarendur um fordóma og mismunun.
20. mars: Fjölmenningarsetur,Rætur og Rauði krossinn á Ísafirði standa fyrir viðburði í Vísindaporti Háskólaseturs í hádeginu í tilefni af Evrópuvikunni, Micaela Kristi-Kali heldur erindi um hvernig er að vera útlendingur á Íslandi.
Reykjanesbær:
19. mars: Unglingar frá Keflavíkurkirkju, KFUK og KFUM o. fl. safnast saman í nýja Bónus- Hagkaup torgið og einnig í Samkaup kl.16:00. Þeir munu dreifa fræðsluefni til vegfarenda í skemmtilegu andrúmslofti með tónlistaratriðum.