Bækur
Réttarstaða fatlaðra
Í byrjun árs 2005 kom út Réttarstaða fatlaðra eftir Brynhildi G. Flóvenz en að útgáfunni stóðu, auk Mannréttindaskrifstofu Íslands, Minningarsjóður Jóhanns Guðmundssonar læknis og Menningarsjóður en útgefandi er Háskólaútgáfan.
Í ritinu er fjallað um réttarstöðu fatlaðra hér á landi og gerð grein fyrir þeim lögum og reglum sem fatlaðir geta byggt rétt sinn á. Í bókinni er ennfremur borin saman annars vegar formleg réttarstaða eins og hún er tryggð í lögum og alþjóðasamningum og hins vegar raunveruleg réttarstaða fatlaðra eins og hún er í framkvæmd. Upppbygging bókarinnar er í megindráttum þannig að fyrst er fjallað almennt um réttaröryggi fatlaðra og síðan er fjallað um einstök réttindi í hverjum kafla fyrir sig svo sem réttinn til menntunar, réttinn til persónufrelsis svo dæmi séu nefnd.
The Human Rights Education Project (HREP)
Einnig á skrifstofan aðild að The Human Rights Education Project (HREP) samstarfsverkefni Friðarháskóla Sameinuðu þjóðanna og ríkisstjórnar Hollands. Verkefnið samanstendur af þremur bókum og margmiðlunardiski. Fyrsti hluti verkefnisins er The Human Rights Reference Handbook, yfirlitsverk um mannréttindahugtök, dóma og hin alþjóðlegu kerfi sem stuðla að vernd mannréttinda. Annar hluti verkefnisins er Human Rights Instruments, samantekt samninga, alþjóðlegra yfirlýsinga og ýmissa skjala sem við koma mannréttindum. Þriðji hluti verkefnisins Universal and Regional Human Rights Protection; Cases and Commentaries, inniheldur dómaútdrætti og umfjöllun um ákvarðanir Mannréttindanefndar SÞ, Mannréttindadómstóls Evrópu, Ameríkudómstólsins og Afrísku Mannréttindanefndarinnar. Margmiðlunardiskurinn Human Rights Ideas, Concepts and Fora, inniheldur bækurnar þrjár auk samninga, dóma og ítarefnis.
Human Rights in Development Yearbook
Mannréttindaskrifstofan á einnig aðild að útgáfu Human Rights in Development Yearbook, er fjallar um mannréttindi og þróunarfræði, ásamt samstarfsaðilum í Samtökum mannréttindastofnana.
The Universal Declaration of Human Rights - A Common Standard of Achievement
Á afmælisári Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna stóðu Norrænu skrifstofurnar sameiginlega að útgáfu bókarinnar The Universal Declaration of Human Rights - A Common Standard of Achievement, sem í er umfjöllun um hverja einstaka grein Mannréttindayfirlýsingarinnar. Ritstjórar voru Guðmundur Alfreðsson og Asbjörn Eide, sem báðir voru einnig meðal höfunda. Aðrir Íslendingar meðal höfunda eru; Ágúst Þór Árnason, Gunnar G. Schram., Jakob Th. Möller, Páll Þórhallsson og Ragnar Aðalsteinsson.
________________________________________________________________________
Economic, Social and Cultural Rights: A Textbook
Second Revised Edition. Edited by Asbjørn Eide, Catarina Krause, and Allan Rosas. Kluwer Law International, Hag, 2001.
________________________________________________________________________
Nordic Journal of Human Rights
Mannréttindaskrifstofan á einnig aðild að útgáfu Nordic Journal of Human Rights, áður Mennesker og rettigheter, sem er eina sérhæfða ritið um mannréttindi á Norðurlöndum. Hægt er að gerast áskrifandi að tímaritinu eða kaupa það hjá Universitetsforlaget í Osló.
________________________________________________________________________
Handbók um réttarstöðu flóttamanna; málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna.
Gefin út af Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rauði kross Íslands og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í handbók þessari er hugtakið „flóttamaður“ skilgreint auk þess sem réttarstaða flóttamanna er skýrð. Handbókin er grundvallarrit um hvernig túlka skuli flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna og er ætlað að leiðbeina stjórnvöldum og fagaðilum um málsmeðferð og skilyrði fyrir ákvörðunum um réttarstöðu flóttamanna. Vonast er til að hún veki áhuga og gagnist öllum þeim sem láta sig vanda flóttamanna varða, s.s embættismönnum, fræðimönnum, lögfræðingum og öðrum sem koma að málefnum flóttamanna og hælisleitenda.
________________________________________________________________________
Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna
Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt af allsherjarþinginu 10. desember 1948. Þann 10. desember 2008 átti Mannréttindayfirlýsingin því 60 ára afmæli og í tilefni af því var yfirlýsingin gefin út í nýrri íslenskri þýðingu. Auk þess gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samvinnu við utanríkisráðuneytið, út bók þarm sem fimmtán ungir listamenn voru fengnir til að gæða ákvæði hennar lífi. Þar má því sjá ólíkan stíl listafólksins ásamt einfölduðum texta mannréttindayfirlýsingarinnar.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project