Íslenskar bækur

Panta má bækur með því að senda tölvupóst með nafni, heimilisfangi og símanúmeri á info@humanrights.is. Greiðið síðan verð bókarinnar inn á reikning 06563 í banka 101 hb 26. Þegar kvittun hefur borist skrifstofunni verða bækurnar sendar til viðtakanda sem greiðir sendingarkostnaðinn. Einnig má nálgast bækurnar á Mannréttindaskrifstofunni alla virka daga milli klukkan 9 og 5.



Réttarstaða fatlaðra

e. Brynhildi G. Flóvenz, Háskólaútgáfan, Reykjavík, 2005. 

Að útgáfunni stóðu Mannréttindaskrifstofa Íslands, Minningarsjóður Jóhanns Guðmundssonar læknis og Menningarsjóður en útgefandi er Háskólaútgáfan.

Rettarstada-fatladraÍ ritinu er fjallað um réttarstöðu fatlaðra hér á landi og gerð grein fyrir þeim lögum og reglum sem fatlaðir geta byggt rétt sinn á. Í bókinni er ennfremur borin saman annars vegar formleg réttarstaða eins og hún er tryggð í lögum og alþjóðasamningum og hins vegar raunveruleg réttarstaða fatlaðra eins og hún er í framkvæmd. Upppbygging bókarinnar er í megindráttum þannig að fyrst er fjallað almennt um réttaröryggi fatlaðra og síðan er fjallað um einstök réttindi í hverjum kafla fyrir sig svo sem réttinn til menntunar, réttinn til persónufrelsis svo dæmi séu nefnd.

Verð:

Kr. 4500.- í kilju.

Kr. 6500.- með hörðu spjaldi.



Handbók um réttarstöðu flóttamanna; málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna.

Gefin út af Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rauði kross Íslands og Rettarstada-haelisleitendaFlóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í handbók þessari er hugtakið „flóttamaður“ skilgreint auk þess sem réttarstaða flóttamanna er skýrð. Handbókin er grundvallarrit um hvernig túlka skuli flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna og er ætlað að leiðbeina stjórnvöldum og fagaðilum um málsmeðferð og skilyrði fyrir ákvörðunum um réttarstöðu flóttamanna. Vonast er til að hún veki áhuga og gagnist öllum þeim sem láta sig vanda flóttamanna varða, s.s embættismönnum, fræðimönnum, lögfræðingum og öðrum sem koma að málefnum flóttamanna og hælisleitenda.

Verð:

2000.- kr.

1500.- kr. fyrir stúdenta.



Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna

Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt af allsherjarþinginu 10.deseMannrettindayfirlysing-Sthmber 1948. Þann 10. desember 2008 átti Mannréttindayfirlýsingin því 60 ára afmæli og í tilefni af því var yfirlýsingin gefin út í nýrri íslenskri þýðingu. Auk þess gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samvinnu við utanríkisráðuneytið, út bók þar sem fimmtán ungir listamenn voru fengnir til að gæða ákvæði hennar lífi. Þar má því sjá ólíkan stíl listafólksins ásamt einfölduðum texta mannréttindayfirlýsingarinnar.

Verð:

Kr. 1500,-



Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna

Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna varð 30 ára í desember 2009. Í tilefni þess gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands út nýtt fræðslurit um Kvennasáttmálann, í samstarfi við Jafnréttisstofu, Félags- og tryggingamálaráðuneyti, UNIFEM á Íslandi og Utanríkisráðuneyti.

KvennasattmalinnMeð útgáfu bókar um Kvennasáttmálann er ætlunin að stuðla að aukinni þekkingu á réttindum kvenna og þar með stuðla að samfélagi þar sem konur njóta jafnréttis, mannhelgi, borgaralegra og stjórnmálalegra réttinda og óttaleysis um líf og afkomu.

Nálgast má bókina hjá Mannréttindaskrifstofu, hjá UNIFEM og víðar, og einnig í pdf formi, hér.

Verð:

Kr. 1500.-



Bann við mismunun

Bann-vid-mismunun-kapa-001Til þess að geta beitt sér í þágu jafnréttis er brýnt að fólk þekki rétt sinn og skyldur og viti hvað felst í banni við mismunun. Á vordögum 2011 kom út handbókin Bann við mismunun og er tilgangur ritsins að kynna tilskipanir ESB um jafnrétti óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú/lífsskoðun, aldri, fötlun og kynhneigð og þá hugmyndafræði sem þar liggur að baki.

Handbókina má nálgast á skrifstofu Mannréttindaskrifstofunnar, á sérvefnum Bann við mismunun, og einnig sem pdf skjal.

Mannréttindaskrifstofa Íslands gefur handbókina út með styrk frá PROGRESS, jafnréttis-og vinnumálaáætlun Evrópusambandsins.


Mannréttindi í þrengingum

page0002Samningurinn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi var fullgiltur af Alþingi þann 22. ágúst 1979. Samningurinn er bindandi fyrir íslenska ríkið og leggur tafarlausar skyldur á herðar þess, meðal annars til að tryggja öllum menntun, heilbrigðisþjónustu og félagslegt öryggi. Hin djúpa efnahagslægð sem fylgdi í kjölfar hruns bankanna haustið 2008 hefur orsakað aukið atvinnuleysi, erfiða og aukna skuldabyrði og hækkun vöruverðs sem veldur því að fólk á erfiðara með að tryggja sjálft rétt sinn til atvinnu, sómasamlegs lífsviðurværis, og félagslegs öryggis. Á sama tíma veldur efnahagssamdrátturinn því að hagræða þarf og skera niður í mennta-, heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Tilgangur bókarinnar er að upplýsa bæði stjórnvöld og almenning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og nauðsyn þess að þau séu virt bæði þegar vel árar og ekki síður á erfiðum samdráttarskeiðum. Í bókinni er bent á leiðir til að tryggja þessi mikilvægu mannréttindi í erfiðu árferði. Fjallað er sérstaklega um réttindi tengd vinnu, rétt til félagslegs öryggis og rétt til menntunar, en þær áherslur sem byggt er á eiga jafnt við um öll efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi.

Bókin er ókeypis. Hana má nálgast hjá Mannréttindaskrifstofunni, og einnig sem pdf-skjal.






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica