Bækur

Eitt markmiða Mannréttindaskrifstofu Íslands er að stuðla að útgáfu fræðaefnis um mannréttindi. Mannréttindaskrifstofan hefur nú þegar átt aðild að fjölda rita en hér að neðan eru titlar sem hægt er að panta frá skrifstofunni.

Panta má bækur með því að senda tölvupóst með nafni, heimilisfangi og símanúmeri á info@humanrights.is. Greiðið síðan verð bókarinnar inn á reikning 06563 í banka 101 hb 26. Þegar kvittun hefur borist skrifstofunni verða bækurnar sendar til viðtakanda sem greiðir sendingarkostnaðinn.


Ritröð Mannréttindaskrifstofu Íslands

Hægt er að panta átta eftirfarandi rit, verð kr 950.-:

1. Mannréttindi í stjórnarskrá: fjögur erindi flutt á fundi Mannréttindaskrifstofu Íslands, Lögfræðingafélags Íslands og Lögmannafélags Íslands hinn 1. des. 1994.

2. Mannréttindastarf Sameinuðu þjóðanna eftir Guðmund S. Alfreðsson og Jakob Th. Möller. (sérpr. úr Úlfljóti 3.-4.tbl. 49. árg. 1996).

3. Universal Justice Through International Criminal Law. A report from the International Criminal Law Symposium in Rome, April 1996. Höfundar Jónatan Þórmundsson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og Robert A. Spano, þá lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis.

4. Our Dreams Will never Die: The Struggle for Self-Determination of East Timor. Eftir Jose Ramos Horta. Byggt á ræðu hans í Norræna húsinu í apríl 1997. Ennfremur birt Magna Carta frelsissamtaka Austur Timor, samþykkt á stofnfundi þeirra í Lissabon og Peniche 23. og 27. apríl 1998.

5. Mannréttindadómstóll Evrópu: Stefnumótandi áhrif á landsrétt. Þema: Dómar í málum einstaklinga sem hafa skipt um kyn. Verkefni unnið af mannréttindahópi ELSA á Íslandi með styrk frá Mannréttindaskrifstofu Íslands

6. Peoples' Europe: Aspects of Democracy in the European Union. Eftir Lilju Sturludóttur, mannréttindafræðing (lögfr. og LLM í mannrétt. lögum) Byggt á meistaraprófsritgerð hennar frá Raoul Wallenberg stofnuninni í Lundi 1998.

7. Pater Est – aðild þriðja manns að véfengingarmáli. Rannsóknarverkefni unnið af mannréttindahópi ELSA á Íslandi með styrk frá Mannréttindaskrifstofu Íslands.

8. Þjóðbundnar mannréttindastofnanir. Skýrsla unnin af Guðrúnu Dögg Guðmundsdóttur, Ernu Sif Jónsdóttur, Lindu B. Guðrúnardóttur og Söndru Lyngdorf með stuðningi frá Rannsóknarsjóði Mannréttindaskrifstofu Íslands og Dóms- og kirkjumálaráðuneyti. Skýrslan kostar kr. 1500.-


Réttarstaða fatlaðra e. Brynhildi G. Flóvenz, Háskólaútgáfan, Reykjavík, 2005

Kr. 4500 í kilju.

Kr. 6500 með hörðu spjaldi.

Að útgáfunni stóðu Mannréttindaskrifstofa Íslands, Minningarsjóður Jóhanns Guðmundssonar læknis og Menningarsjóður en útgefandi er Háskólaútgáfan.

Í ritinu er fjallað um réttarstöðu fatlaðra hér á landi og gerð grein fyrir þeim lögum og reglum sem fatlaðir geta byggt rétt sinn á. Í bókinni er ennfremur borin saman annars vegar formleg réttarstaða eins og hún er tryggð í lögum og alþjóðasamningum og hins vegar raunveruleg réttarstaða fatlaðra eins og hún er í framkvæmd. Upppbygging bókarinnar er í megindráttum þannig að fyrst er fjallað almennt um réttaröryggi fatlaðra og síðan er fjallað um einstök réttindi í hverjum kafla fyrir sig svo sem réttinn til menntunar, réttinn til persónufrelsis svo dæmi séu nefnd.


Skrifstofan stýrir The Human Rights Education Project (HREP) samstarfsverkefni Friðarháskóla Sameinuðu þjóðanna og ríkisstjórnar Hollands. Verkefnið samanstendur af þremur bókum og margmiðlunardiski. Fyrsti hluti verkefnisins er The Human Rights Reference Handbook, yfirlitsverk um mannréttindahugtök, dóma og hin alþjóðlegu kerfi sem stuðla að vernd mannréttinda. Annar hluti verkefnisins er Human Rights Instruments, samantekt samninga, alþjóðlegra yfirlýsinga og ýmissa skjala sem við koma mannréttindum. Þriðji hluti verkefnisins Universal and Regional Human Rights Protection; Cases and Commentaries, inniheldur dómaútdrætti og umfjöllun um ákvarðanir Mannréttindanefndar Sþ, Mannréttindadómstóls Evrópu, Ameríkudómstólsins og Afrísku Mannréttindanefndarinnar. Margmiðlunardiskurinn Human Rights Ideas, Concepts and Fora, inniheldur bækurnar þrjár auk samninga, dóma og ítarefnis.

Nokkur eintök fræðslupakkans eru enn fáanleg.

Í mars 2009 kom út áttunda útgáfa verkefnisins Human Rights Instruments og í apríl 2010 kom út fimmta útgáfa verkefnisins Human Rights Reference Handbook.


Human Rights in Development Yearbook, Nordic Human Rights Publications, Oslo, allt frá árinu 1994.

Kr. 5000.

Mannréttindaskrifstofan á einnig aðild að útgáfu Human Rights in Development Yearbook, er fjallar um strauma og stefnur í mannréttindamálum í þróunarlöndum. Auk Mannréttindaskrifstofunnar standa að ritinu Christian Michelsen stofnunin í, Bergen; Danska Mannréttindastofnunin; the Ludwig Boltzmann stofnunin í Vín; Hollenska mannréttindastofnunin í Utrecht; Norska mannréttindastofnunin í Osló og Raoul Wallenberg stofnunin í Lundi.


The Universal Declaration of Human Rights - A Common Standard of Achievement e. Alfredsson, Gudmundur ; Eide, Asbjørn (eds.), Hag, 1999.

Kr. 6000.

Á afmælisári Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna stóðu Norrænu skrifstofurnar sameiginlega að útgáfu bókarinnar The Universal Declaration of Human Rights - A Common Standard of Achievement, sem í er umfjöllun um hverja einstaka grein Mannréttindayfirlýsingarinnar. Ritstjórar voru Guðmundur Alfreðsson og Asbjörn Eide, sem báðir voru einnig meðal höfunda. Aðrir Íslendingar meðal höfunda eru; Ágúst Þór Árnason, Gunnar G. Schram., Jakob Th. Möller, Páll Þórhallsson og Ragnar Aðalsteinsson.


Economic, Social and Cultural Rights: A Textbook, Second Revised Edition. Edited by Asbjørn Eide, Catarina Krause, and Allan Rosas. Kluwer Law International, Hag, 2001.

Kr. 7000.


Nordic Journal of Human Rights

Mannréttindaskrifstofan á einnig aðild að útgáfu Nordic Journal of Human Rights, áður Mennesker og rettigheter, sem er eina sérhæfða ritið um mannréttindi á Norðurlöndum. Hægt er að gerast áskrifandi að tímaritinu eða kaupa það hjá Universitetsforlaget í Osló.




Handbók um réttarstöðu flóttamanna; málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna.

Gefin út af Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rauði kross Íslands og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Í handbók þessari er hugtakið „flóttamaður“ skilgreint auk þess sem réttarstaða flóttamanna er skýrð. Handbókin er grundvallarrit um hvernig túlka skuli flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna og er ætlað að leiðbeina stjórnvöldum og fagaðilum um málsmeðferð og skilyrði fyrir ákvörðunum um réttarstöðu flóttamanna. Vonast er til að hún veki áhuga og gagnist öllum þeim sem láta sig vanda flóttamanna varða, s.s embættismönnum, fræðimönnum, lögfræðingum og öðrum sem koma að málefnum flóttamanna og hælisleitenda.

Verð:

2000.- kr.

1500.- kr. fyrir stúdenta.

 ______________________________________________________________________

 Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna
 

Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt af allsherjarþinginu 10. desember 1948. Þann 10. desember 2008 átti Mannréttindayfirlýsingin því 60 ára afmæli og í tilefni af því var yfirlýsingin gefin út í nýrri íslenskri þýðingu. Auk þess gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samvinnu við utanríkisráðuneytið, út bók þar sem fimmtán ungir listamenn voru fengnir til að gæða ákvæði hennar lífi. Þar má því sjá ólíkan stíl listafólksins ásamt einfölduðum texta mannréttindayfirlýsingarinnar.

 

 

 

Leturstærð: