Undirskriftasöfnun
ÁSKORUN TIL STJÓRNVALDA UM AÐGERÐIR GEGN MANSALI
Árlega verða þúsundir einstaklinga, aðallega konur og börn, fórnarlömb mansals. Talið er að hálf milljón kvenna, hið minnsta, sé á ári hverju flutt frá fátækum löndum jarðar til þeirra ríkari þar sem þær eru þvingaðar til starfa í kynlífsiðnaðinum. Mörgum er rænt og haldið nauðugum, þær eru barðar og niðurlægðar og beittar kynferðislegu ofbeldi við aðstæður sem minna mest á þrælahald.
Mansal ógnar mannréttindum og grundvallargildum í lýðræðissamfélagi en undanfarið hafa komið fram vísbendingar um að mansal tengt kynlífsiðnaði sé að skjóta rótum á Íslandi. Nýlega var vændi lögleitt og því er enn brýnna en áður að grípa til þverfaglegra aðgerða til að koma í veg fyrir að þeir sem standa að mansali nái fótfestu hér á landi og tryggja að engar konur á Íslandi búi við kynlífsþrælkun, kúgun og ofbeldi. Íslensk stjórnvöld verða að taka við sér og grípa til alhliða aðgerða sem grundvallast á forvörnum, verndun mannréttinda fórnarlambanna og saksókn þeirra sem standa að mansali.
Ég krefst þess að íslensk stjórnvöld beiti sér af alhug gegn mansali og samþykki þverfaglega aðgerðaáætlun til að berjast gegn mansali sem byggi á verndun mannréttinda fórnarlambanna. Aðgerðaráætlunin kveði m.a. á um :
-
Að stjórnvöld festi í lög fórnarlamba- og vitnavernd, m.a. ákvæði er snúa að vernd vegna vitnisburðar fyrir dómstólum, félagslegri- og fjárhagslegri aðstoð, áfallahjálp og aðstoð við atvinnuleit. Fórnarlömbum standi vernd og aðstoð til boða óháð því hvort þau vinna með ákæruvaldinu eða ekki.
-
Þjálfun fagaðila (landamæraeftirlits, lögreglu, ákæruvalds, félagsmálayfirvalda, heilbrigðisstarfsfólks, o.s.frv.) til að þeir geti þekkt fórnarlömb mansals
-
Fórnarlömbum sé tryggð umsvifalaus vernd þegar ljóst er að um mansal er að ræða – allt þar til þau vilja snúa heim sjálfviljug eða hafa fengið dvalarleyfi á Íslandi.
-
Að aðgerðir gegn mansali bitni ekki á hópum sem eiga undir högg að sækja s.s. hælisleitendum og farandverkafólki.
-
Aukið fjármagn til rannsókna á umfangi mansals og kynlífsiðnaðar á Íslandi
-
Átak til að vekja almenning til umhugsunar um tengsl klámiðnaðar, vændis og mansals
Þá hvet ég stjórnvöld til að fullgilda Evrópuráðssamning um aðgerðir gegn mansali og samning Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri, skipulagðri brotastarfsemi og bókun við hann um mansal.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project