Starfsmenn

Framkvæmdastjóri


Margret_SteinarsdottirMargrét Steinarsdóttir tók við stöðu framkvæmdastjóra í mars 2010.

Margrét lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1993. Áður en Margrét tók við stöðu framkvæmdastjóra Mannréttindaskrifstofunnar starfaði hún sem framkvæmdastjóri Alþjóðahúss frá 1. janúar 2009 til 30. nóvember sama ár og sem lögfræðingur hússins frá júní 2004.

Margrét hefur m.a. unnið hjá Lögbirtingablaði og Stjórnartíðindum, Ríkisskattstjóra og Persónuvernd.

margret@humanrights.is

                       

 

Steinunn PieperSteinunn Björk Bjarkardóttir Pieper

Í leyfi til frá störfum um tíma

Steinunn nam hugvísindi og skandinavísk fræði við Brigham Young háskóla í Utah í Bandaríkjunum og lauk þaðan BA námi árið 2000. Árið 2004 hóf hún nám við School of Government and International Affairs við Durham háskóla í Norður Englandi og útskrifaðist þaðan í janúar 2007 með rannsóknar-mastersgráðu. Rannsókn hennar nefndist An evaluation of immigration and integration policies with respect to the muslim community in Iceland.

Steinunn hefur unnið á Mannréttindaskrifstofu Íslands síðan í nóvember 2009.

steinunn@humanrights.is

 

 

Jona-A-PalmadottirJóna Aðalheiður Pálmadóttir

Jóna lauk meistaranámi í lögfræði við Háskóla Íslands árið 2009. Meistararitgerð hennar bar titilinn „Mansal barna og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands vegna þess“. Jóna starfaði hjá Tollstjóra með náminu ásamt því að vera aðstoðarkennari í Sifja- og erfðarétti við háskólann eina önn. Jóna er einnig sjálfboðaliði hjá Kvennaráðgjöfinni.

Jóna hefur starfað hjá skrifstofunni í fullu starfi frá ágúst 2011.  Hún vinnur að umsögnum um lagafrumvörp, ritun skýrslna til alþjóðlegra stofnana sem og öðrum tilfallandi verkefnum.

jona@humanrights.is



180487_3449Valgerður Björk Pálsdóttir

Valgerður útskrifaðist með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands í október 2011, en einnig stundaði hún skiptinám við Vínarháskóla skólaárið 2010-2011. Lokaritgerð hennar fjallar um lýðræðisvæðingu í þremur fyrrum Sovétríkjunum en áhuginn á lýðræðisvæðingu og ólýðræðislegum ríkjum kviknaði í Vínarháskóla þar sem áhersla er lögð á Austur Evrópu í félagsvísindagreinum. Ritgerðin bar heitið ,,Democratic Transition in Post-Soviet Europe: The Incomplete Process of Democratization in Ukraine, Belarus and Moldova." Valgerður hefur unnið að innflytjendamálum en hún var sjálfboðaliði í Vín hjá samtökum sem taka á móti ungum hælisleitendum, tekur þátt í Félagsvinaverkefni Rauða Krossins og tekur öðru hverju viðtöl við innflytjendur á Suðurnesjunum um reynslu þeirra.

Valgerður hóf störf hjá Mannréttindaskrifstofu í janúar 2012 en hún hafði verið í starfsnámi á skrifstofunni frá september 2011.

valgerdur@humanrights.is




Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica