Alþjóðlegt samstarf

Mannréttindaskrifstofan kemur fram fyrir Íslands hönd í alþjóðlegu mannréttindastarfi.

AHRI

Meðal fastra samstarfsverkefna sem Mannréttindaskrifstofan er aðili að eru samtök evrópskra mannréttindaskrifstofa (AHRI) en skrifstofan átti þátt í stofnun þeirra á Íslandi árið 2000. Auk þess hefur skrifstofan tekið þátt í verkefnum um gerð kennsluefnis um mannrétttindi sem styrkt var af Evrópusambandinu, Friðarháskóla Sameinuðu þjóðanna og Ríkisstjórn Hollands. Á hverju ári fær skrifstofan fjölmörg tilboð um þátttöku í fjölþjóðlegum ráðstefnum og fundum um mannréttindi á vegum Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðsins og annarra stofnana og háskóla.

Human Rights in Developing Countries Yearbook.

Skrifstofan hefur um nokkurra ára skeið verið aðili að samstarfsverkefni sjö evrópskra mannréttindastofnana um útgáfu árbókar um mannréttindamál í löndunum í suðri, Human Rights in Developing Countries Yearbook. Útgáfan hófst árið 1985 og er ætlað að nýtast breiðum lesendahópi: opinberum stofnunum, þróunarstofnunum, félagasamtökum, fjölmiðlum, fræðimönnum og almenningi. 

Nordic Journal of Human Rights

Frá stofnun Mannréttindaskrifstofu Íslands hefur hún verið aðili að útgáfu tímaritsins Nordic Journal of Human Rights eða Mennesker og Rettigheter eins og það hét áður. Tímaritið er eitt fárra norrænna sérfræðirita um mannrétttindamál og er gefið út af mannréttindaskrifstofunum í Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Finnlandi og Íslandi.  

Norrænu mannréttindaskrifstofurnar fimm hafa átt samstarf um ýmis önnur verkefni síðustu ár svo sem ráðstefnur og útgáfu. Nú stendur til að setja á fót nýtt rannsóknanet á sviði mannréttinda sem hefur það að markmiði að styrkja samstarf og samlegðaráhrif í mannréttindarannsóknum á Norðurlöndum.

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Mannréttindaskrifstofan tekur þátt í alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi.

Átakið hófst árið 1991 að frumkvæði Center for Women's Global Leadership í Rutgers-háskólanum í Bandaríkjunum. Átakið hefst þann 25. nóvember á ári hverju, nær yfir alþjóðlega alnæmisdaginn 1. desember og endar á mannréttindadaginn 10. desember. Síðan átakið hófst hafa 1700 samtök í 130 löndum tekið þátt í því til að draga athygli almennings og stjórnvalda að ofbeldi gegn konum og kallað eftir aðgerðum til að útrýma því. Þema 16 daganna árið 2004 var 'For the health of Women, for the Health of all: No more Violence', með sérstakri áherslu á tengsl kynbundins ofbeldis og HIV/alnæmis.

Alþjóðlegt átak UNITED gegn kynþáttafordómum

Mannréttindaskrifstofan tekur þátt í alþjóðlegu átaki gegn kynþáttafordómum

 

 

 

Leturstærð: