Um okkur
Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð stofnun sem vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. Skrifstofan gegnir einnig ákveðnu eftirlitshlutverki en hún veitir umsagnir um lagafrumvörp og skilar skýrslum til eftirlitsnefnda Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins.

