PROGRESS - jafnréttis- og vinnumálaáætlun Evrópusambandsins

EU-flag-with-logo-PROGRESS

Upplýsingar um meginmarkið áætlunarinnar.

Meginmarkið PROGRESS áætlunarinnar er að veita fjármagn til verkefna sem stuðla að markmiðum Evrópusambandsins á sviði jafnréttis-, félags- og vinnumála og hafa verið tilgreind í Lissabon-áætluninni. Hérlendis hefur félags- og tryggingamálaráðuneytið umsjón með Progress.

Markmið Lissabon-áætlunarinnar er að

  • Evrópskur vinnumarkaður verði samkeppnishæfari þar sem áhersla er lögð á þekkingariðnað;
  • Skapa fleiri og betri störf innan Evrópu;
  • Þróa samfélag án mismunar.

Progress-áætlunin skiptist í fimm svið:

  1. Atvinnumál.
  2. Bætta vinnuvernd, þar á meðal aukið öryggi á vinnustöðum.
  3. Stuðning við markmið um félagslega velferð og aukna þátttöku jaðarhópa í samfélagi.
  4. Jafnrétti kynjanna.
  5. Aðgerðir gegn mismunun og samfélag án aðgreiningar.

Evrópusambandið hefur tilgreint fimm hópa sem eru í hættu á að verða fyrir mismunun og njóta ekki jafnra tækifæra. Progress-áætlunin styrkir eftirfarandi gerðir verkefna:

  1. Rannsóknir og greiningar.
  2. Samstarfsverkefni milli landa.
  3. Kynningar og verkefni sem leiða til vitundarvakningu í samfélaginu.
  4. Stuðning við hagsmunaaðila, félagasamtök og stofnanir.
  5. Fyrirmyndarverkefni.

Sækja um

Tvær leiðir eru mögulegar þegar sótt er um verkefni á vegum Progress:

Calls for Tender: Eins konar verktakasamningar en þá er Evrópusambandið búið að fullmóta hugmynd en leitar eftir aðilum sem vilja framkvæma verkefnið. Þau verkefni eru að fullu greidd af Evrópusambandinu.

Calls for Proposals: Óskað eftir hugmyndum að verkefnum sem uppfylla eiga ákveðið markmið hjá Evrópusambandinu. Umsækjandi hefur nokkuð svigrúm til þess að móta hugmyndir að verkefni.

Þessi verkefni eru styrkt að hámarki 80% af heildarkostnaði verkefnisins. Auglýsingar eftir umsóknum birtast á heimasíðu áætlunarinnar en þar er einnig að finna allar frekari upplýsingar um hana.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica