16 Daga átak gegn kynbundu ofbeldi

Leggðu þitt af mörkum ? Farðu fram á aðgerðir: Saman getum við bundið enda á ofbeldi gegn konum!

Á morgun, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum, verður alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi ýtt úr vör í 19 sinn. Átakinu verður formlega ýtt úr vör með Ljósagöngu til að vekja athygli á ofbeldi gegn konum og hvetja til aðgerða. Lagt verður af stað frá Þjóðmenningarhúsi kl. 19:00 og gengið niður að Sólfarinu þar sem Friðarsúlan verður tendruð kl. 19:45. Í fararbroddi verða kyndilberar sem láta sig málefnið varða, m.a. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Guðrún Jónsdóttir, talskona StígamótaHalldóra Geirharðsdóttir, leikkona, Jón Páll Eyjólfsson, leikskáld, Margrét Tómasdóttir, skátahöfðingi Íslands, Ragnhildur Gísladóttir, tónskáld og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, höfundur bókarinnarOfbeldi á Íslandi á mannamáli.

16 daga átak hefur í frá 1991 unnið að því að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim nýta átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa fórnarlömbum ofbeldis, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þolenda. Þá hefur átakið verið nýtt til að stuðla að því alþjóðlegum mannréttindareglum sé beitt til að vinna gegn kynbundu ofbeldi sem mannréttindabroti, heilbrigðisvandamáli og ógn við mannfrelsi og frið um allan heim.

Í fyrra var átakið tileinkað 60 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Meginreglurnar, sem settar eru fram í yfirlýsingunni, eru grundvöllur starfs mannréttindafrömuða um allan heim og veita starfi þeirra jafnframt viðurkenningu og lögmæti. Í tengslum við átakið í fyrra lýstu milljónir manna yfir vilja til að binda endi á ofbeldi gegn konum og áréttuðu stuðning sinn við alþjóðlega mannréttindavernd. Átakið byggir á þessari hreyfingu; 2009 er tileinkað þeim sem hafa helgað sig baráttunni gegn ofbeldi gegn konum um árabil, átakið hvetur alla, konur og karla, til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn kynbundu ofbeldi og fara fram á aðgerðir og krefjast efnda á þeim loforðum sem gefin hafa verið til að kveða niður ofbeldi gegn konum.

Enda þótt staða íslenskra kvenna sé sterk á mörgum sviðum þá er kynbundið ofbeldi alvarlegt vandamál hér á landi. Árið 2008 leituðu 547 einstaklingar til Stígamóta en frá upphafi samtakanna til ársloka 2008 hafa alls 5,279 manns leitað þar aðstoðar. 22 % íslenskra kvenna hafa einhvern tíma á ævinni hafa verið beittar ofbeldi af maka eða fyrrverandi maka en 530 konur hafa leitað til Kvennaathvarfs á árinu 2009 - komur til samtakanna eru frá upphafi um 5800.

Í 16 daga mun á fimmta tug stofnana og samtaka sem láta sig málefnið varða standa fyrir margvíslegum viðburðum í því augnamiði að vekja athygli á orsökum og afleiðingum kynbundins ofbeldis og krefjast aðgerða. Upplýsingar um átakið og viðburðadagatal er að finna á heimasíðu átaksins: http://mannrettindi.is/servefir/16dagar

Nánari upplýsingar veitir Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands í síma 8950085.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica