Aðgerðaráætlun gegn mansali (Rúv 9. des. 2007)
Ríkisstjórnin samþykkti nýverið tillögur félagsmála- og dómsmálaráðherra um að gera aðgerðaráætlun gegn mansali. Í tilkynningu segir að þýðingarmikið sé að rannsaka umfang mansals og leggja til aðgerðir sem miði að forvörnum og fræðslu meðal almennings um mansal. Einnig þurfi að finna leiðir til að aðstoða þolendur og vernda - og móta aðgerðir sem miðist að því að gerendur verði sóttir til saka.
Félagsráðherra skilar ríkisstjórninni tillögum að aðgerðaráætlun í apríl. Hrannar Arnarsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, segir áætlunin muni taka yfir alla þá þætti sem snúa að mansali.
Þá þurfi að þjálfa fagaðila til að þekkja fórnarlömb mansals og tryggja þolendum stuðning og endurhæfingu. Hrannar segir að til að berjast gegn eftirspurn eftir vændi sé hægt að fræða menn um orsakir og afleiðingar þess. Í tilkynningu félagsmálaráðuneytisins segir ennfremur að áhersla verði lögð á samstarf við hagsmunaaðila og frjáls félagasamtök. Þrjátíu og fimm samtök og stofnanir, þar á meðal félagsmálaráðuneytið, standa nú fyrir sextán daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Einn liður í því er að skora á stjórnvöld að gera aðgerðaáætlun gegn mansali. Í henni eigi meðal annars að felast að fórnarlamba- og vitnavernd verði fest í lög og að auknu fjármagni verði veitt til rannsókna á umfangi mansals og kynlífsiðnaðar hér á landi.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project