Póstkortaátak karlahóps femínista
Í TILEFNI af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi dreifir karlahópur Femínistafélags Íslands póstkortum til að minna á mikilvægi ábyrgra aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi.
Í þeim tilgangi hefur karlahópurinn sent öllum alþingismönnum, hæstaréttardómurum og héraðsdómurum póstkort með eftirfarandi skilaboðum: „Í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi viljum við minna á mikilvægi ábyrgra aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi.“ Einnig mun karlahópurinn dreifa póstkortunum á kaffihús og félagsmiðstöðvar, ásamt því að dreifa þeim um netið og í tölvupósti
Póstkortin eru unnin að fyrirmynd bresku samtakanna Truth about rape og í samstarfi við samtökin.
Tilgangurinn með kortunum er að afmynda goðsagnir og ranghugmyndir um nauðganir og minna um leið á alvöru nauðgana.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project