Veistu hvað er að gerast við hliðina á þér?

Sæunn Guðmundsdóttir skrifar í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi: "...þó að við grátum í einrúmi og lífið sé að buga okkur, þá sér jafnvel okkar nánasta fólk ekki neitt..."

saunnÉG ER leiðbeinandi hjá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Aflið var stofnað 2002 og byggist á sama grunni og Stígamót enda sækjum við námskeið og þ.h. til þeirra, en við erum aðallega með þjónustu fyrir Norðurlandið. Aukningin er þónokkur á milli ára, á síðastliðnu ári voru á annað hundruð viðtöl, fjórir sjálfshjálparhópar, 15 fyrirlestrar í skólunum, símtöl, sólarhringsvaktir um verslunarmannahelgina á Akureyri og fleira en í ár eru komin á annað hundrað viðtöl, 7 hópar og svo má lengi telja. Okkar vinna er mest í sjálfboðavinnu þar sem við rekum þetta eingöngu á styrkjum. Í upphafi var okkar markmið að vera til staðar fyrir þolendur kynferðisofbeldis en smátt og smátt kom heimilisofbeldi inn í, enda kemur það í ljós í sjálfshjálparhópunum að afleiðingarnar eru þær sömu á heimilis og kynferðisofbeldi, í 80-100% tilfella merkja þau við þau 17 atriði sem við förum yfir sem afleiðingar af ofbeldinu. – Allir kannast við kvíða, hræðslu, skömm, sektarkennd, lélegt sjálfsmat og höfnun, meirihlutinn hefur svo gengið í gegnum líkamlegar afleiðingar (höfuðverk, magaverk, vöðvabólgu, vefjagigt) og haft sjálfsvígshugsanir sem gengið hafa mislangt. Þetta er skelfileg niðurstaða þar sem að ein af hverjum fjórum stúlkum og einn af hverjum tíu drengjum undir 18 ára aldri hafa lent í einhverju kynferðislegu ofbeldi, plús allir sem lenda í einhverskonar ofbeldi seinna á ævinni. Mitt mesta sjokk var og er þegar fólk sem hefur verið samferða manni í gegnum lífið, s.s nágrannar, skólafélagar og vinir, koma til mín í viðtal, hafa jafnvel lent í einhverju ungir og verið fullir af þessum neikvæðu tilfinningum allan tímann sem ég hef umgengist þá. En okkur er kennt við ofbeldið að fela allar tilfinningar, svo gríman er það sterk á okkur, að þó að við grátum í einrúmi og lífið sé að buga okkur, þá sér jafnvel okkar nánasta fólk ekki neitt. Því segi ég, tökum eftir fólkinu í kringum okkur, hlustum á það, stoppum og látum fólk vita að það eigi einhvern að. Því vitum við hvað er að gerast við hliðina á okkur?

Höfundur er leiðbeinandi hjá Aflinu.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica