Umfangsmikil kynlífsþrælkun (24 stundir 6. des. 2007)

Breska lögreglan í átaki gegn mansali í kynlífsiðnaði Ísland - skortir úrræði til að greina og takast á við vandann

Eftir Andrés Inga Jónsson

andresingi@24stundir.is

Skoska lögreglan hefur undanfarnar átta vikur frelsað 20 konur sem hún telur vera fórnarlömb mansals. Aðgerðirnar eru hluti af Pentameter, átaki bresku lögreglunnar gegn mansali. Þetta er í annað sinn sem Bretar fara í átak af þessu tagi.

Mikið vandamál í Bretlandi

Bresk yfirvöld telja mansal vera útbreitt í landinu, en oft sé erfitt að veita fórnarlömbum þess aðstoð. „Vandamálið er að fá þær til að tala við okkur. Margar treysta ekki lögreglunni og finnst erfitt að opna sig. En þær hafa örugglega verið fluttar hingað gegn eigin vilja, og oft neyddar út í vændi til að borga skuldir fjölskyldna sinna,“ segir David Bullen, umsjónarmaður aðgerðanna í suðausturhluta Skotlands, í viðtali við The Scotsman. Bullen nefnir dæmi af rúmenskri konu sem flutti til London til að ganga í starf sem henni hafði verið lofað. Þar hefði hún verið misnotuð kynferðislega, vegabréfið tekið af henni og henni komið fyrir í vændishúsi í Edinborg.

Ísland þarf að byrgja brunninn

Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, segir nokkuð um að þangað leiti konur sem séu fórnarlömb mansals í víðasta skilningi. Hún segir þess dæmi að konur hafi verið ginntar í málamyndahjónabönd, þar sem eiginmennirnir geri þær að nokkurs konar þrælum – ýmist í vændi eða á almennum vinnumarkaði. Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu, segir Ísland skorta aðgerðaáætlun til að berjast gegn mansali. Slík áætlun liggur til grundvallar aðgerðum bresku lögreglunnar. Guðrún hefur áhyggjur af skorti á lagaúrræðum í ljósi mögulegrar aukningar mansals. „Það þarf að koma í veg fyrir að Ísland verði áfangastaður mansals. Við erum mjög ríkt land. Þar sem vændi er ekki refsivert hér á landi, gæti þetta verið mjög arðbær glæpastarfsemi.“

- Talið er að allt að 700 konur hafi verið seldar kynlífsiðnaði Skotlands.

Lítið er vitað um umfang mansals á Íslandi.

Fyrir Alþingi liggur frumvarp til breytinga á hegningarlögum til að vernda fórnarlömb mansals.

 



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica