Dólgar flytja vændiskonur til landsins (Fréttablaðið 6. des. 2007)

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan á Suðurnesjum hefur haft afskipti af allmörgum erlendum konum sem komið hafa hingað til lands til að selja sig. Þær neita að tjá sig nánar um hagi sína.

LÖGREGLUMÁL Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur á árinu haft afskipti af sex konum sem vitað er að komu hingað til lands til að stunda vændi. Rökstuddur grunur leikur á að þær hafi komið hingað á vegum dólga í heimalandinu. Þá hefur lögreglan á Suðurnesjum haft afskipti af tíu til fimmtán konum við komu þeirra til landsins af sömu ástæðum. Ekkert þessara mála hefur þó leitt til lögreglurannsóknar þar sem konurnar hafa allar neitað að tjá sig nánar um hagi sína. Eftir breytingar á almennum hegningarlögum fyrr á árinu má nú stunda vændi á Íslandi. Hafi þriðji maður hins vegar atvinnu eða viðurværi sitt af vændi annarra skal hann sæta fangelsi allt að fjórum árum. Konurnar sem kynferðisbrotadeild hafði afskipti af komu frá Brasilíu, Portúgal og Rússlandi. „Konurnar sögðust vera á eigin vegum en sterkur grunur leikur á að þær hafi verið sendar af þriðja manni eða fyrirtæki,“ segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar. „Þeim hefur verið boðin aðstoð en þær þiggja hana ekki. Þær koma sér fyrir hér en staldra stutt við.“ Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn segist hafa orðið var við að konur komi hingað til lands í því skyni að stunda vændi. „Stundum eru konur tilbúnar til að segja okkur að þær séu að koma hingað í þeim tilgangi að selja sig. En þær eru ekki tilbúnar að tjá sig nánar um það við löggæsluna,“ segir Jón Pétur. „Þetta eru tiltölulega erfið mál og erfitt að finna nægilegar sannanir til að geta farið út í málssókn.“ - jss



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica