Hvernig er háskólakennslu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum háttað?
Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi
Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi: "Enga heildstæða stefnu er að finna um kennslu í þessum málaflokki í íslenskum háskólum."
HVERNIG eru starfsstéttir sem vinna með börnum, eða að málefnum þeirra, búnar undir það að takast á við mál tengd kynferðislegu ofbeldi gegn börnum? Hvernig búa íslenskir háskólar nemendur sína undir slíkt? Þessum spurningum var leitað svara við í úttekt sem Barnaheill létu gera sumarið 2007.
Helstu niðurstöður úttektarinnar eru þær, að alls fjalla 32 námskeið í íslenskum háskólum að einhverju leyti með beinum hætti um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, þar af voru 17 í Háskóla Íslands. Fimm námskeið í Lögregluskóla ríkisins fjalla um þetta mál. Fjallað var með beinum hætti um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í tæplega 3% námskeiða innan þeirra deilda sem skoðaðar voru. Námskeiðin eru jafnmisjöfn og þau eru mörg. Í sumum námskeiðanna er umfjöllunin í eina kennslustund en önnur fjalla um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum frá ýmsum hliðum og fjalla um barnavernd og aðra skylda þætti. Enga heildstæða stefnu er að finna um kennslu í þessum málaflokki í íslenskum háskólum. Það virðist að mestu fara eftir áhuga og þekkingu kennara hvort einhver umfjöllun er um málefnið og með hvaða hætti.
Úttektin náði til Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst, Háskólans á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands og einnig til Lögregluskóla ríkisins. Skoðuð voru námskeið innan deilda eða brauta, sem útskrifa fólk sem gera má ráð fyrir að eigi eftir að vinna með börnum eða að málefnum þeirra.
Fagfólk í skólakerfinu, í félags- og heilbrigðisþjónustu, í dómskerfinu og í löggæslu er í lykilhlutverki varðandi forvarnir og fræðslu, varðandi greiningu og þekkingu á einkennum barna sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi, varðandi meðferð og stuðning við börn og foreldra þeirra og einnig varðandi meðferðarúrræði og refsingu fyrir gerendur. Góður undirbúningur í námi hlýtur að vera ein af undirstöðum þess að vel takist til í vinnu fagfólks, börnum og samfélaginu til heilla.
Barnaheill hafa um árabil unnið að málefnum tengdum kynferðislegu ofbeldi gegn börnum og telja samtökin mjög mikilvægt að mótuð verði heildstæð stefna í íslenskum háskólum hvað varðar kennslu um barnavernd og um ofbeldi gegn börnum.
Á morgun, miðvikudaginn 5. desember, boða Barnaheill til hádegisfundar þar sem nánar verður fjallað um úttektina og niðurstöður hennar. Á fundinum verður enn fremur fjallað um aðkomu Evrópuhóps Barnaheilla að baráttunni gegn mansali. Fundurinn er haldinn í Kornhlöðunni, Bankastræti 2, Reykjavík, frá kl. 12-13 og er öllum opinn. Skráning fer fram á raningvars@barnaheill.is
Höfundur er verkefnastjóri hjá Barnaheillum.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project