Félagsvinir - Mentor er málið
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir skrifar í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi
SAMSTARFSHÓPURINN ,,Allar heimsins konur“ sem er myndaður af konum frá ólíkum amtökum með mikinn áhuga og vilja til að vinna að velferð kvenna og þá sérstaklega kvenna af erlendum uppruna hefur í samvinnu við Rauða kross Íslands sett af stað verkefni sem nú hefur hafið göngu sína. Verkefni sem kallað er ,,Félagsvinir – Mentor er málið“ og er það til húsa hjá Rauða krossinum í Garðabæ. Með verkefninu er ætlunin að fá saman erlenda konu og íslenska konu eða erlenda konu sem hefur búið hér lengi til að mynda tengsl þannig að báðar hafi gagn og gaman af en hugmyndin er fengin af reynslu sambærilegs verkefnis í Danmörku. Með verkefninu er leitast við að opna íslenskt samfélag fyrir erlenda félaganum með samtölum og samskiptum. Framandi samfélag og nýtt tungumál er mikil hindrun fyrir fólk sem flyst til Íslands. Íslenskunámið er mörgum erfitt og fá margir alltof litla möguleika til að þjálfa sig í málinu en það má gera í slíku sambandi. Á hinum Norðurlöndunum er tímafjöldi í kennslu á tungumáli viðkomandi lands mun lengri og eftirfylgd meiri. Einkenni hópsins sem flytur til Íslands er sérstakt vegna þess hve atvinnuþátttakan er mikil. Íslenskur vinnumarkaður og upplýsingar um samskipti á vinnustöðum eru hluti af því sem gott getur verið að miðla til erlendu kvennanna sem fara í mentor-mentees samband. Litið er á sambandið sem félagslegt tengslanet og á jafnréttisgrundvelli. Ætla má að slíkt verkefni verði með tímanum líka mikil forvörn gegn allskonar misrétti þar sem þekking á samfélaginu og réttarstöðu verður konum mun aðgengilegri með sambandi af þessum toga. Reynsla Dana er góð af þessu verkefni og hefur það hlotið margar viðurkenningar og talið að það opni dyrnar að samfélaginu og gefi báðum aðilum mikilvæga reynslu og þekkingu í mannlegum samskiptum og menningarlegum viðhorfum. Leitað er að fólki víða og standa nú yfir heimsóknir á fjölmenningarlega vinnustaði til að finna þá sem vilja komast í slíkt samband. Við hvetjum áhugasama að hafa samband við Ásu hjá Rauða krossinum í Garðabæ bæði ef fólk hefur áhuga á að verða mentor eða mentee. Netfangið er asa@redcross.is Verkefnið er tilraunaverkefni til tveggja ára en bundnar eru vonir við að það haldi áfram enda eru viðtökurnar nú þegar mjög jákvæðar og nokkrir komnir af stað sem mentor-mentee – félagsvinir.
Höfundur er í fagstjórn verkefnisins.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project