Í fangelsi án rimla (Mbl. 27. nóv. 2007)

Vísbendingar um að mansal sé að skjóta rótum


ÁRLEGA verður að minnsta kosti hálf milljón kvenna fórnarlömb mansals, ýmist í eigin heimalandi eða erlendis, og er markmiðið m.a. hagnýting í kynferðislegum tilgangi. Konurnar eru margar hverjar í upphafi blekktar með fölskum atvinnutilboðum, en raunveruleikanum sem þær mæta má líkja við fangelsi án rimla. Vísbendingar eru um að mansal sé að skjóta rótum hér á landi.

Konur sem seldar eru mansali eru stundum ólöglegir innflytjendur með fölsuð vegabréf. Slík staða gerir það m.a. að verkum að þær sækja ekki rétt sinn.

Sérstakt refsiákvæði um mansal var sett inn í almenn hegningarlög hér á landi árið 2003. Einnig hefur landamæraeftirlit verið hert. Hins vegar hefur verið bent á að tilfinnanlega vanti vernd fyrir konurnar og aðstoð fyrir þær að koma undir sig fótunum. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur endurtekið lagt fram á Alþingi frumvarp um fórnarlambavernd. Í slíkri vernd felst m.a. að fórnarlamb mansals skuli njóta nafnleyndar, leyndar á dvalarstað og annarra nauðsynlegra öryggisráðstafana gegn ógnun frá þeim aðilum sem standa að mansalinu. Þá skal viðkomandi gefinn kostur á tímabundnu dvalar- og atvinnuleyfi, gegn því að aðstoða yfirvöld við að hafa uppi á þeim sem stunda mansal og veita lögreglu og dómstólum upplýsingar. Þá eigi þeir sem þiggi fórnarlambavernd rétt á félagslegum stuðningi. Þeim skuli standa til boða félagsleg, sálræn og lögfræðileg aðstoð, læknishjálp og þjónusta túlka, sem og starfsþjálfun og aðstoð við atvinnuleit.

Skert ferðafrelsi einkenni mansals

„Ástandið hjá okkur er ekkert öðruvísi en í þeim löndum sem við berum okkur saman við,“ segir Rúna Jónsdóttir hjá Stígamótum. Við mansal séu viðkvæmar aðstæður kvenna nýttar, t.d. fátækt og bágar félagslegar aðstæður. Aðrir hagnist á því að selja aðgang að líkama þeirra. Sé þessi skilgreining notuð sé mansal að finna hér á landi. Hingað komi t.d. konur frá fátækum löndum til að dansa nektardans. Þá bendir hún á að á einum nektardansstaðanna hafi ferðafrelsi kvennanna verið heft, sem sé eitt af einkennum mansals.

Víða í nágrannalöndum okkar hefur verið samþykkt aðgerðaáætlun gegn mansali. Hún felur m.a. í sér að leitað er markvisst að fórnarlömbum mansals og þeim boðin vernd.

Eftir Sunnu Ósk Logadóttur

sunna@mbl.is

 



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica