Erfitt að sanna misnotkun (Vísir 28. nóv. 2007)

Vísbendingar eru um að mansal snerti Ísland ekki síður en önnur Evrópulönd. Nýlega fékk kona dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum. Guðrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindastofu, vakti athygli á því að í fyrsta sinn hefði einstaklingur fengið dvalarleyfi á grundvelli þess að mansal hefði átt sér stað.
Að sögn Hildar Dungal, forstjóra Útlendingastofnunar, lágu margar aðrar ástæður að baki því að konan fékk dvalarleyfi. Mansal hljóti þó að vera vandamál hér á landi líkt og annars staðar í Evrópu. Þá eru einnig vísbendingar um að konur séu keyptar til landsins og þær þurfi að vinna af sér skuldir, eða seldur sé að þeim aðgangur.
Hildur segir það koma fyrir að stofnunin þurfi að veita konum dvalarleyfi þrátt fyrir grun um að þær séu misnotaðar með einhverjum hætti.
„Það er erfitt að sanna slíkt. Við getum leitað til lögreglu en höfum ekki heimild til að skoða málin sjálf. Í slíkum tilfellum leikur grunur á að kona sæti misnotkun í hjónabandi."
Hildur segir ekki ljóst hvernig skilgreina eigi mansal. Hvort það eigi við þegar bágbornar aðstæður kvenna séu nýttar, hugsanlega í fjárhagslegum ávinningi eða á annan hátt.
Útlendingastofnun vinnur með Stígamótum og Mannréttindastofu að gerð aðgerðaáætlunar til að bregðast við því ef upp kemur grunur um að konur sem leita til stofnunarinnar búi við erfiðar aðstæður. - eb



 

 

 

Leturstærð: