Ræða mansal (Mbl. 1. des. 2007)

Í TILEFNI af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi, sem nú er haldið í fjórða sinn á Íslandi, stendur Kvenréttindafélag Íslands fyrir hádegisfundi á Kaffi Cúltúra í samvinnu við Alþjóðahúsið næstkomanir mánudag, 3. desember, kl. 12. Efni fundarins er mansal á Íslandi.

Flutt verða þrjú erindi: Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur Alþjóðahúss, flytur erindið: Er mansal á Íslandi? Þorbjörg I. Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður ræðir tengsl vændis og mansals. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari fjallar um nýja löggjöf varðandi mansal.

Fundurinn er öllum opinn.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica