Konu veitt dvalarleyfi vegna gruns um mansal (Vísir 26. nóv. 2007)
Dæmi er um að kona hafi fengið dvalarleyfi á Íslandi vegna vísbendinga um að hún hafi verið seld mansali hingað til lands. Þetta fullyrðir Guðrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands. Hún var gestur Lillýjar Valgerðar Pétursdóttur í hádegisviðtalinu á Stöð 2.
„Það eru vísbendingar á lofti um að angar mansals séu að tengja sig hingað," segir Guðrún. Hún bendir á að Ísland sé eina Norðurlandið þar sem ekki er verið að vinna að aðgerðaráætlun gegn mansali
„Við viljum að stjórnvöld setji sér áætlun um það hvernig bregðast á við mansali," segir Guðrún. Hún vill að stjórnvöld tryggi fórnarlömbum kynferðisofbeldis vernd þegar þau vitna í málum gegn gerendum og vill jafnframt að stjórnvöld tryggi fjármagn til rannsókna á mansali hér á landi.
„Það er líka þörf á vitundavakningu meðal almennings. Því kynlífsþrælkun þrífst ekki nema að það sé eftirspurn," segir Guðrún.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project