Átak hafið gegn kynbundnu ofbeldi (Morgunblaðið 25. nóv. 2007)
Sextán daga átaki gegn kynbundu ofbeldi er ýtt úr vör í sautjánda sinn í dag, á alþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna um afnám ofbeldis gegn konum. Hópar og samtök um allan heim nýta átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa fórnarlömbum ofbeldis, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þolenda.
Í tilkynningu frá Mannréttindaskrifstofu Íslands segir, að vitneskja um kynbundið ofbeldi hafi vaxið stórum á síðustu árum og það sé ánægjuefni að í nóvember 2006 hafi ríkisstjórn Íslands kynnt aðgerðaráætlun gegn ofbeldi á heimilum og kynferðislegu ofbeldi. Brýnt sé að staðið verði við stóru orðin og nægilegt fjármagn tryggt til að áætlunin komist raunverulega í framkvæmd. Í aðgerðaáætlunina vanti þó tilfinnanlega aðgerðir til að koma í veg fyrir mansal.
Talið sé að hálf milljón kvenna, hið minnsta, sé á ári hverju flutt frá fátækum löndum jarðar til þeirra ríkari þar sem þær eru þvingaðar til starfa í kynlífsiðnaði. Mörgum sé rænt og haldið nauðugum, þær séu barðar og niðurlægðar og beittar kynferðislegu ofbeldi við aðstæður sem minna mest á þrælahald.
Aðstandendur 16 daga átaks á Íslandi, á þriðja tug aðila og samtaka sem láta sig málefni kvenna varða, munu næstu daga standa fyrir margvíslegum viðburðum til að vekja athygli almennings á orsökum og afleiðingum kynbundins ofbeldis, með sérstakri áherslu á mansal.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project