Réttur til að stofna til hjúskapar

Hjónaband og fjölskylda er forn stofnun sem hefur verið viðurkennd um aldir og er álitin einn af hornsteinum samfélagsins.

Eins og aðrir þættir í samfélögum heimsins hefur fjölskyldan tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum. Sem dæmi má nefna hafa ný lög og reglur verið settar á fót til þess að tryggja að einstaklingar í hjónabandi njóti sömu réttinda. Mikið hefur t.d áunnist í réttindabaráttu kvenna og samkynhneigðra og hefur það haft töluverð áhrif á fjölskylduna og það fjölskyldumynstur sem áður þekktist. Ný lög og hefðir hafa skapast um ættleiðingar og nú eru til sérstök réttindi barna.

Ríkinu er skylt að viðurkenna hjónabandið og fjölskyldu og eiga þessar stofnanir að njóta réttinda samkvæmt ríkjandi lögum og reglum.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica