Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna
Aðalskrifstofur Mannréttindaráðsins hafa jafnan verið til húsa í Þjóðabandalags-höllinni í Genf í Sviss en einnig var fjallað um ýmsa þætti þeirra á skrifstofu framkvæmdastjórans í New York. Árið 1993 var sett á laggirnar sérstakt embætti mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, er kallast High Commissioner for Human Rights – því embætti gegnir nú Navanethem Pillay en hún tók við störfum 1. september 2008.
Navanethem, sem er frá Suður-Afríku, var fyrsta konan sem opnaði lögfræðiskrifstofu í heimahéraði sínu Natal árið 1967. Hún starfaði lengi sem verjandi fyrir einstaklinga sem mótfallnir voru aðskilnaðarstefnunni og hún kom upp um pyndingar og mannréttindabrot sem áttu sér stað á Robben Island, þar sem Nelson Mandela var m.a. fangi. Eftir að aðskilnaðarstefnunni var aflétt var hún skipuð dómari við Hæstarétt Suður-Afríku og sama ár var hún valin dómari við alþjóðaglæpadómstólinn í Rúanda. Þar starfaði hún í átta ár og sem forseti dómstólsins síðustu fjögur árin. Árið 2003 var hún skipuð dómari við Alþjóðadómstólinn í Haag þar sem hún starfaði til ágúst 2008.
Mannréttindafulltrúinn er skipaður af framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna með samþykki Allsherjarþingsins og heyrir í reynd undir þrjár stofnanir, þingið, efnahags- og félagsmálaráðið (ECOSOC) og aðalritarann. Með tilkomu þessa embættis var skrifstofan í Genf sett undir það og ákveðið, að fulltrúinn skyldi þjónusta allar eftirlits- og kærunefndirnar sem settar hafa verið á stofn á grundvelli alþjóðasamninganna.

