Efnahags og félagsmálaráðið

Í Efnahags-, og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna sitja 54 aðildarríki sem hvert um sig situr í þrjú ár. Ráðið fundar tvisvar á ári.

Ráðið gefur Allsherjarþinginu álit sitt á málefnum er snerta mannréttindi. Ráðið fer einnig yfir skýrslur Mannréttindaráðsins áður en þær eru lagðar inn á borð til Allsherjarþingsins.

Efnahags-, og félagsmálaráðið hefur sett upp fjöldann allan af mikilvægum mannréttindanefndum, a) mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sem setti á fót undirnefnd um eflingu og virðingu mannréttinda, b) nefnd um stöðu kvenna, c) nefnd um félagslega þróun, d) og nefnd um refsivarnir og agaviðurlög.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica