Önnur kerfi
Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til þess að koma upp mannréttindasamningum í Arabaríkjum Mið-Austurlanda. Þær hafa þó ekki átt erindi til erfiðis. Flest ríkin eru þó aðilar að Sameinuðu þjóðunum og ýmsum samningum sem tilheyra þeim, eins og til dæmis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Af þeim samningum sem sérstaklega hefur verið unnið að innan Arabaríkjanna má nefna Cairo yfirlýsinguna frá 1990 (The Cairo Decleration on Human Rights in Islam). Hún hefur þó aldrei verið fullgilt opinberlega og öll réttindi sem nefnd eru í yfirlýsingunni eru í samræmi við íslömsk Sharia lög.
Jafnframt Cairo yfirlýsingunni hafa arabískir mannréttindasérfræðingar útfært Mannréttindasáttmála Arabaríkja og tók Arababandalagið (League of Arab States) sáttmálann upp árið 1994. Sáttmálinn hefur þó aldrei verið fullgiltur vegna skorts á staðfestingu aðildarríkja Arababandalagsins.
Í Asíu hafa fjölmargar tilraunir verið reyndar til að koma upp svæðisbundnu mannréttindakerfi, án þess að nokkur þeirra hafi borið merkjanlegan árangur. Er menningarlegur fjölbreytileiki Asíu talinn valdurinn að því að erfitt er að ná samkomulagi um sameiginlegt mannréttindakerfi.
Margir þjóðarleiðtogar í Asíu hafa lýst yfir vantrú sinni á mannréttindi og telja hugtakið einungis hugsmíð Vesturlanda. Sumir hverjir telja jafnvel að umfjöllun um mikilvægi mannréttinda á alþjóðlegum grundvelli sé einungis nýlendustefna Vesturveldanna í nýjum búningi. Margir telja að menning Asíu sé of ólík þerri vestrænu og því eigi sömu samfélagslegu gildi ekki við.
Samtök Suð-Austur Asíu, ASEAN, hafa þó náð nokkrum árangri og er líklegt að í framtíðinni verði asískt mannréttindaráð sett á laggirnar undir hatti ASEAN.
ASEAN samtökin voru stofnuð í Bangkok þann 8. ágúst árið 1967. Löndin sem upprunalega stofnuðu samtökin voru Indónesía, Malasía, Filippseyjar, Singapore og Taíland. Í dag eru aðildarríkin tíu talsins.
Markmið samtakanna er, a) að kappkosta eflingu hagvaxtar, félagslega framför og menningarlega þróun á svæðinu. Til grundvallar á að liggja jafnræði og samvinna þjóðanna sem leiða á til friðsamlegs og happsæls samfélags Suð–Austur Asíuríkja, og b) að efla frið og stöðugleika á svæðinu með linnulausri virðingu fyrir réttvísi, réttaröryggi, samskiptum ríkjanna og hollustu við Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Fjölmörg Asíuríki eiga einnig í samræðum um mannréttindamál við Evrópusambandið og nokkrar ráðstefnur hafa verið haldnar á milli nokkurra Asíuríkja og Evrópusambandsins.

